Dvöl - 01.04.1944, Page 9

Dvöl - 01.04.1944, Page 9
D VÖI. 87 legs magnleysis. Gangan varð mér æ erfiðari, þó að ég reyndi að bera mig sem bezt. „Þú ættir nú að fá þér vænan sopa til að verma þig,“ sagði Karl mikli loks og fékk mér flöskuna. „Það hafa víst nógu margir drep- ið sig á þessu déskotans eitri,“ sagði ég og bandaði við henni með hend- inni, því að nú var ég orðinn ön- ugur af þreytu og vanlíðan. Og áfram var haldið — í þögn. En ferðalagið var orðið mér sár- asta kvöl. Mig verkjaði í axlirnar, og ég var kaldur innvortis. Hins vegar virtist félagi minn ekki taka þetta nærri sér, þó að hann bæri þungan bagga. Gangan var honum leikur einn og lundin létt. Mér sárgramdist þetta hvort tveggja, fannst ég lítill og minni máttar. „Má ég ekki styðja þig?“ spurði Karl, þegar hann sá, að ég var far- inn að reika í spori, fölur og fár. „Nei þakk,“ svaraði ég fálega, en gat þó tæpast varizt falli af stormi og magnleysi. Loksins neyddist ég til að þiggja aðstoð hans, þó að mér væri það þvert um geð. Hann tók skjala- veskið mitt í aðra hönd sína og studdi mig með hinni. Þannig héldum við áfram — lengi. Mér þótti sem þetta ferðalag mundi aldrei taka enda. Karl mikli var hættur að segja mér gamansögur frá yngri árum sínum, af svaðil- förum og drykkjuskap. Hann var hættur að leika við hvern sinn fingur, en var þó ljúfmennskan sjálf og veitti mér óskipta aðstoð sína, líkt og enginn hlutur væri sjálfsagðari. Þar kom, að ég gat ekki framar hreyft fæturna eða haldið mér uppréttum. Þá tók hann mig á bakið en bar baggann í fyrir. í það sinn hafði ég ekki rænu til að undrast þrek hans og þol. Ég vissi varla, hvað var að gerast. Síðan hef ég oft og mörgum sinn- um dáðst að drengskap hans. Ég mun gera það til æviloka. Ég er honum þakklátastur allra manna. Honum á ég líf mitt að launa — og miklu meira.“ Andrés þagnaði og horfði hugs- andi fram fyrir sig. Ég hafði al- drei séð hann svo fagran sem þarna í eldskini arinsins. „Hvernig er hægt að gefa nokkr- um manni meira en lífið?“ spurði ég, en iðraðist þegar spurnarinnar. Hann svaraði henni engu orði og hélt áfram: „Ég veit ekki, hve lengi hann bar mig. Mér fannst það vera heil eilífð. Stöku sinnum settist hann niður, hvíldi sig, en reis von bráðar á fætur aftur. Veðrið hamaðist umhverfis okkur og þyrlaði kófinu fyrir vitin. Honum tókst að halda réttri stefnu. Þaö var kraftaverki líkast, að hann komst heim að Urriðalóni um nóttina og fann bæ- inn í blindhríð og náttmyrkri. Ég varð þá í fyrsta sinn á ævinni sannfærður um eilífa velferð mína, þegar Karl mikli bar mig inn í

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.