Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 13

Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 13
dvöl 91 höfðu inni að halda tuttugu og níu málverk, þ. á m. eftir Matisse, Picasso, Tiepolo og Franz Hals og tvö lítil eftir Degas. Þar voru líka þessi þrjú málverk Michaels. Hvað sem fyrir kæmi varð að bjarga þessum málverkum. Bjarga. — Já, en hvernig átti að bjarga þeim? Hver vildi taka það að sér? Michael var í pólska hernum. Enginn af þeim ættingj- um eða vinum Wollsteins, sem hann hefði getað snúið sér til, hafdi ráðrúm til þess. Þetta olli áhyggjum hans. En er hér var komið dundi reið- arslagið yfir. París féll og vopna- hlé var samið milli Frakklands og Þýzkalands, og í skilmálunum var Það áskilið, að flestir hinna póli- tísku landflóttamanna í útlend- ingahersveitunum yrðu afhentir hjóðverjum. Það var næstum því Víst, að við Wollstein yrðum á list- anum. Nokkrir dagar liðu. Þá bjargaðist ég úr herbúðunum með hjálp anaerískra vina, og var komið fyrir hieð leynd í Marseilles. Þar beið ég svo eftir tækifæri til þess að komast út fyrir landamærin. Það kom að síðustu. Vinir mínir höfðu séð um það á aðdáunar- verðan hátt. En ég hafði eina spurningu fram að bera. Ég spurði um það, hvort ég mætti taka mann hieð mér. hað mundi auka hættuna, var mér sagt, en samt var ósk mín veitt að lokum. Vinir mínir ætluðu að koma boðum til Wollsteins, útvega hon- um leyfi til þess að fara til læknis í Marseilles, og meðan varðmaður- inn biði hans fyrir utan dyr lækn- isins, átti hann að komast út um bakdyr á húsinu og fara til mín. Þetta gekk allt greiðlega. Það virtist töfrum líkast, að þarna skyldi Wollstein vera kominn, hrif- inn úr herbúðarvörzlunni og kom- inn í herbergið til mín og farinn að hlusta á ráðagerðir mínar. Hann hlustaði með athygli. En þegar ég lauk máli mínu, hristi hann þunga, laukmyndaða höf- uðið. „Ég er þér mjög þakklátur,“ sagði hann, „en ég get ekki farið.“ Ég starði á hann og skildi hann ekki. Ef til vill var það vegna erf- iðleikanna, sem við mundum mæta, datt mér í hug. Nei, ekki voru það erfiðleikar ferðarinnar. „Þú mátt ekki misskilja mig,“ sagði hann. „Manstu eftir farm- kvittununum?“ Jú, ég mundi eftir þeim, en samt var mér þetta ráðgáta. Ég benti honum á, að hann mætti ekki fórna lífi sínu fyrir málverkin, hve dýr- mæt, sem þau væru. Hann brosti til mín hinu sorg- mædda og daufa brosi sínu. „Ég geri það ekki vegna málverkanna eftir Matisse eða Picasso eða Tiepolo," sagði hann. „Það er vegna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.