Dvöl - 01.04.1944, Side 23

Dvöl - 01.04.1944, Side 23
DVÖL 101 auk sinna venjulegra bústarfa. Konan verður að mála og vegg- fóðra stofur sínar, ef hún vill snyrta þær, og sé von á nýjum kennara, koma nokkrar konur saman og taka skólastofunni tak. Þegar ég var í Dayton, tók unga fólkið á sig rögg og skreytti kirkj- una. Við bundum sveiga og festar úr hvers konar blómskrúði, sem hægt var að fá í námunda og skrýddum kirkjuna hátt og lágt. Við höfðum nauman tíma, því að þreskivélin var komin af stað í hringferð sína og brátt kæmi röð- in að okkur. Uppskeran var að hefjast; hún er eins og orrusta. Göö uppskera. Tíminn er óvinur okkar þá, og veðrið hefur allt ráð okkar í hendi sér. Stundum er óvinnandi fyrir hita, og stundum leggur stormur- inn bönd á hendur okkar. Þetta er það, sem leggur áhyggjur á herðar bóndans. , Þreskivélin gengur bæ frá bæ. Bændurnir hjálpa hver öðrum við uppskeruna. Ef einhver er orðinn á eftir með að stakka kornið, koma hjálpsamir nágrannar með hesta sína og vagna. Og nú er röðin komin að okkur. Þreskivélin er komin — en þó ekki ein í för. Þar eru einnig ýmsir nágrannnar, því að þreskingin er framkvæmd í samvinnu. Og nú er vissara fyrir húsmóðurina og heimasæturnar að láta hendur standa fram úr erm- um, því að þreskidagana eru um fimmtán til tuttugu menn í fæði á bænum, og þeir taka hraustlega til matar síns. Karlmennirnir verða að borða fyrst — kvenfólkið á eftir, því að ekki er rúm fyrir alla í einu. Enginn liggur á liði sínu, og eftir fáeina daga er korn- ið þreskt og komið í hlöðu, og hálm- inum hlaðið í stakk við hlöðuna. Þá varpar bóndinn öndinni eins og spretthlaupari sem kominn er að marki. Nú. er aðeins eftir að plægja hina gulu akra og sá vetr- arhveitinu. En þó má ekki gleyma einu — og unga fólkið gleymir því sjálfsagt ekki: Haustmarkaðinum. Bændurnir velja það bezta af framleiðslu sinni; föngulegustu

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.