Dvöl - 01.04.1944, Side 28

Dvöl - 01.04.1944, Side 28
106 henni og farið að hugsa um ein- hverja aðra. Það væri alveg hræði- legt. Hún óskaði þess, að hann væri kominn aftur heill á húfi, og væri geymdur í gullbúrinu, sem stóð þarna autt og tilbúið, því að þegar þernurnar höfðu grafið dauða páfagaukinn, létu þær búr- ið vera kyrrt á sínum stað. Allt í einu heyrði September smá- tíst rétt hjá eyranu á sér og sá þá, að litli fuglinn sat á öxl hennar. Hann hafði komið svo hljóðlega inn og setzt svo léttilega, að hún varð hans ekki vör. — Ég var alltaf að hugsa um það, hvað hefði getað orðið af þér, sagði prinsess- an. — Ég bjóst við því, að þú værir farin að undrast um mig, sagði litli fuglinn. Sannleikurinn er sá, að ég komst með mestu naumind- um heim í kvöld. Tengdafaðir minn hélt veizlu, og allir vildu að ég yrði lengur. En ég óttaðist, að þú yrðir hrædd um mig. Af því að svona stóð á, var þetta mjög hættuleg hreinskilni af litla fuglinum. Hjarta September sló mjög þungt, en hún ákvað samt að hætta ekki á það að týna litla fuglinum. Hún rétti fram höndina og tók fuglinn, því var hann vanur. Hún hafði gaman af að finna hjarta hans slá, er hann sat á lófa henn- ar, og ég hygg, að hann hafi unað sér vel í hlýjunni frá litlu hönd- inni. — Fuglinn grunaði því ekkert D VÖL og var svo hissa, þegar hún fór með hann að búrinu og ýtti hon- um inn í það og lokaði, að hann sagði ekki orð. En eftir andartak fór hann að hoppa til og frá á fíla- beinsstönginni. — Hvaða leikur er þetta? sagði hann. — Þetta er enginn leikur, sagði September. En sumir kettirnir hennar mömmu verða á flökti í kvöld og þú ert miklu áhultari í búrinu. — Jæja, mér er alveg sama í þetta skiptið, en hleyptu mér út í fyrramálið, sagði litli fuglinn. Hann át voða góðan kvöldverð og tók síðan að syngja. En allt í einu hætti hann í miðju lagi. — Ég veit ekki hvað gengur að mér, sagði hann, en mér finnst ég ekki geta sungið í kvöld. — Ágætt, sagði September, þá skaltu bara fara að sofa í staðinn. Hann stakk höfðinu undir væng- inn og eftir nokkrar mínútur var hann sofnaður. September fór líka að sofa. En í dögun var hún vakin af litla fuglinum, sem kallaði eins hátt og röddin leyfði. — Vaknaðu! Vaknaðu! sagði hann. Opnaðu dyrnar á búrinu og hleyptu mér út. Ég ætla aö fara og fljúga dálítið meðan jörðin er döggvot. — Þú hefur það miklu betra, þar sem þú ert, sagði September. Þú átt fallegt gullbúr, sem gert var af bezta smiðnum í ríki föður

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.