Dvöl - 01.04.1944, Qupperneq 33

Dvöl - 01.04.1944, Qupperneq 33
D VÖL 111 endurminningum mínum, þegar ég sem drengur stóð við hné Ásgríms gamla heima í dalabænum mínum og hlustaði á sögur hans frá Arn- arvantsheiði. — Og þráin sauð í mér að verða svo stór maður, að ég gæti farið í leitir á Arnarvatns- heiði, en faðir minn átti ekki upp- rekstur þar, svo að vonir mínar voru á völtum knerri. Loksins var ég kominn nokkuö yfir fermingu. En þá var Ásgrímur orðinn það gamall, að hann var ánægður með að láta mig fara fyr- ir sig í Fljótadragaleit. Nú klæddist ég skinnsokkum og fékk í nestið magál og þykkar síð- ur af nýslátruðum sauð og vænt hangikjötsstykki af sauð frá því haustinu áður, ásamt öðru góðgæti. Steig ég svo á bak öðrum hvíta klár Ásgríms, en teymdi hinn. Áður en langt var komið bættust nokkrir ungir menn við, og geröist brátt mjög glatt á hjalla í hóp okkar. En nú er ég kominn á Arnar- vatnsheiði, og skulum við dvelja þar um stund í anda. Draumurinn langþráði hefur nú rætzt. Nú var hinn forni sjóli fjalla, sem mér hafði orðið starsýnt á í norðaustri frá æskustöðvum mínum, kominn i suðurátt. Hvítu klárarnir hans Ásgríms í Skógum höfðu borið mig alla þessa leið. Þótt Eiríksjökull setti mikinn svip á hérað mitt, bar þó enn meir á tign hans og svipmóti öllu, er hann brá yfir þessar víðu, flötu heiðar, sem liggja fyrir norðan hann ,eins og „opin bók, er fingur drottins reit,“ svo viðhöfð séu orð skáldsins um Borgarfjarðarhérað. Arnarvatnsheiði er marflatt en víðáttumikiö heiðaflæmi, er liggur 5—600 metra yfir sjó. Vesturhluti hennar nefnist Tvídægra. Alls stað- ar eru grágrýtishraun undir, en víða eru þau hulin jökulruðningi og öðru lausagrjóti, eða vötnum og mýrum. Meira ber á grjótinu aust- an til í heiðinni, þar er mikið af melum, urðum og klöppum, og er grjótið mjög vindnúið. Vestar á heiðinni er miklu meiri gróður, einkum á Tvídægru. Þar eru gras- flóar miklir og margt vatna og tjarna. Er þar erfitt yfirferðar á sumrum, því að flóarnir eru fúnir og grasmiklir. Lyng og víðir er mjög víða í holtum og ásum og eru beitilönd þarna bæði stór og góð. Norðaustur af Arnarvatnsheiði liggur Stóri-sandur, en norður af honum Kúluheiði, en vestar Gríms- tunguheiði upp af Vatnsdal, Víði- dalstunguheiði upp af Víðidal og Aðalbólsheiði, Núpsheiði og Húks- heiði upp af Miðfirði. En vestast af öllum þessum heiðum liggur Holtavörðuheiði. Búfé gengur þarna saman á heiðunum í tugþúsunda tali bæði frá Húnvetningum og Borgfirðingum. Þrífst það með á- gætum og safnar undra miklum holdum þann tíma, sem það er þarna á heiðunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.