Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 46

Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 46
124 D VÖL að hleypt væri af hundruðum fallbyssna samtímis, sögðu yfir- völdin. Svört askan settist jafnvel á húsaþök Mexicoborgar 180 mílur í burtu. En þetta var aðeins undanfari enn meiri skelfinga. Þriðju nótt- ina tók glóandi hraunleðja að velta upp úr keilumynduðum eldgígnum. Hún brauzt út úr iðrum jarðar- innar og valt yfir gígbarminn og niður hlíðarnar á þessari fjalls- keilu í þungum stöðugum straumi og var hraunröstin um 20 fet á þykkt og um 200 fet á breidd, hvítglóandi fyrst, en varð svo fagurrauð á leið sinni yfir dalinn. Bráður bani var búinn hverri líf- veru, sem ekki gat flúið. Stjórnarerindrekar, jarðfræð- ingar, blaðamenn og ljósmyndarar hópuðust hvaðanæva að. Þeir hættu sér alla leið þangað, sem bær Dionisio hafði staðið, yfir hálfstorkna hraunbreiðuna, sem nú huldi þorpið Paracutin, og nálguðust gígbarmana, sem lukust um eldinn í þessu akurvíti. Þarna dvöldu þeir dögum saman og rann- sökuðu hið furðulega fyrirbrigði, — nýmyndað eldfjall á vesturhveli jarðar, — hið fyrsta síðan 1759. Sex sinnum síðan eldfjallið myndaðist, hafa orðið í því smá- gos. í hvert skipti hafa fylgt þeim ógurlegar sprengingar, sem vöktu óhug jafnvel í fjarlægum þorp- um. í sjötta skiptið, 10. júní, opn- aðist annar eldgígur í Paracutin- hæðinni, þar sem þorpið Paracutin hafði staðið. Annað hraunflóð tók að streyma eftir öðrum dal. Fyrst fór það um 1000 fet á dag. Mán- uði síðar hafði það dreifzt svo mjög, að hraunbrúnin færðist að- eins um 10 fet á dag. Þessir tveir dalir liggja nú grafn- ir undir þykku hraunflóði og ösku. Paracutineldfjallið gnæfir nú um 1200 fet upp úr sléttunni og er þrír mílufjórðungar að þykkt við fjallsræturnar. Þegar ég flaug þangað til að skoða eldfjallið, tók ég fyrst eftir eyðileggingaráhrifum þess um 75 mílur burtu. Svart öskulag huldi nú dali og fjallahlíðar, sem áður voru græn. Aldingarðarnir voru horfnir. Kirkjuturnarnir stóðu upp úr öskunni og gjallinu. Upp- sþrettur höfðu þornað og áin Capa- titzo var seytlandi soraleðja. Brátt sást tröllaukinn reyksúla stíga beint upp í loftið upp úr eld- gígnum og, þótt ótrúlegt sé, steig reykurinn í allt að 20.000 feta hæð. Fjórðu hverju sekúndu gaus upp nýr reykjarmökkur, grjótið þeytt- ist upp í loftið í tugtonnatali, og breiður straumur af glóandi hraun- leðju fór meira en eitt þúsund fet upp til þess að komast yfir gíg- barmana og streymdi síðan niður í tveim stöðum. Sökum hins mikla hita og rauð- glóandi steina, sem þeyttust upp í loftið, voru gluggar flugvélarinnar lokaðir, en það útilokaði þó ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.