Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 56

Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 56
134 D VÖL hinni stofunni tvö. Hann lagði frá sér fötin og fór aftur upp í. Það var hábjartur dagur þegar hann vaknaði aftur. í fyrsta skipti hafði hann sofið glymhyrnuna af sér. Hann spratt upp, smeygði sér í fötin og hneppti að sér skyrtuna um leið og hann skauzt út úr dyrunum. Móðir hans horfði andartak á eftir honum og tók siðan aftur til við vinnu sína. Augu hennar voru íhugul og góðleg. Af og til færðist bros á varir hennar án þess að blæbrigði sæjust í augunum. Jói hljóp niður að hesthúsinu. Þegar hann var miðs vegar heyrði hann hljóðið, sem hann óttaðist mest; hinn dimma og þunga hósta frá hests- brjósti. Þá tók hann á sprett. í húsinu var Billi Búkk yfir hestinum. Hann var að nudda fætur hestsins með sterkum og þykkum höndunum. Hann leit upp og brosti breitt. „Hann hefur bara kvefazt svolítið,“ sagði Billi. „Við gerum hann góðan á nokkrum dögum.“ Jói leit í andlit hestinum. Augun voru hálflokuð og varirnar þrútnar og skorpnar. í augnakrókunum var hrúður af hörðnuðu slími. Eyrun héngu slöpp niður og hann drúpti höfði. Jói rétti út hendina, en Gabílan hreyfði sig ekki. Hann hóstaði aftur og aftur og líkami hans varð stíf- ur af áreynslunni. Litlir taumar af þunnum hor lágu úr nösum hans. Jói leit aftur á Billa Búkk. „Hann er fárveikur, Billi.“ „Það er bara dálítið kvef, eins og ég segi,“ maldaði Billi í móinn. „Farðu og komdu 1 þig morgunmatnum og farðu svo í skólann. Ég skal hugsa um hann.“ „En þú þarft kannske að gera eitthvað annað. Þú ferð kannske frá honum.“ „Nei, það geri ég ekki. Ég fer ekki frá honum. Á morgun er laugar- dagur. Þá geturðu verið hjá honum allan daginn.“ Billa hafði skjátlazt aftur, og honum féll það mjög illa. Nú varð hann að geta læknað hest- inn. Jói rölti heim í bæ og fékk sér sæti við borðið, daufur í dálkinn. Fleskið og eggin voru köld og væmin, en hann tók ekki eftir því. Hann át sinn venjulega skerf. Hann bað ekki heldur um leyfi frá skólanum. Móðir hans strauk hár hans frá augunum um leið og hún tók diskinn hans. „Billi annast alveg um hestinn," sagði hún. Allur dagurinn í skólanum var eins og martröð. Hann gat ekki svarað einni spurningu eða lesið eitt orð. Hann gat ekki einu sinni sagt neinum frá því að hesturinn væri veikur, því að það gat gert hann enn veikari. Og þegar skólinn loks var úti lagði hann af stað heim fullur kvíða. Hann gekk löturhægt og lét hina strákana verða á undan sér. Hann óskaði,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.