Dvöl - 01.04.1944, Side 57

Dvöl - 01.04.1944, Side 57
dvöl 135 að hann gæti haldið göngunni endalaust áfram og næði aldrei heim til bæjarins. Billi var i hesthúsinu, eins og hann hafði lofað, og hesturinn var lakari. Augun máttu nú heita lokuð, og við andardráttinn hvein í hálf- stífluðum nösunum. Það sem sást af augunum var hulið slikju. Það var efamál að hesturinn sæi nokkuð lengur. Við og við frýsaði hann til að reyna að hreinsa nasirnar, en virtist aðeins gera þær enn blindari með því. Jói horfði hugsjúkur á rauða feldinn hans. Hárið var úfið og ókembt og virtist hafa misst allan ljómann. Bill stóð þögull aftan við básinn. Jói vildi ekki spyrja, en hann varð þó að fá einhverja vitneskju. „Billi, verður hann — verður hann frískur aftur?“ Billi stakk hendinni milli rimlanna og þreifaði á hálsi hestsins. „Pinndu hérna,“ sagði hann og bar fingur Jóa að stórum hnúð neðan á hálsinum. „Þegar hann stækkar, þá sker ég í hann og þá batnar hon- um.“ Jói leit snöggt undan, því hann hafði heyrt talað um þennan hnúð. „Hvað er eiginlega að honum?“ Billa var ekki ljúft að svara, en hann mátti til. Honum mátti ekki skjátlast þrisvar í röð. „Andarteppa,“ sagði hann stuttaralega, „en hafðu engar áhyggjur af því. Ég skal losa hann við hana. Ég hef vitað þá ná sér aftur, þó þeir væru verri en Gabílan er. Ég ætla nú að gefa honum gufupokann. Þú getur hjálpað mér.“ „Já,“ sagði Jói beygður. Hann elti Billa inn i hlöðuna og horfði á hann útbúa gufupokann. Það var djúpur hauspoki úr striga með böndum til að hnýta yfir höfuðið á hestinum. Billi fyllti hann að einum þriðja af sáðum og bætti síðan við tveim hnefum af þurrkuðum humlaköngl- um. Ofan á þetta hellti hann dálitlu af karbólsýru og ögn af terpen- tínu. „Ég hræri þetta saman meðan þú skýzt heim eftir katli með sjóð- andi vatni,“ sagði Billi. Þegar Jói kom aftur með sjóðheitt vatnið, hnýtti Billi pokaböndin yfir böfuðið á Gabílan og batt pokaopið þétt að múlanum. Svo hellti hann beita vatninu á blandið í pokanum inn um gat á hliðinni. Hesturinn tók bipp um leið og mökkur af sterkri gufu gaus upp. En svo barst hinn sterki og deyfandi eimur upp nasirnar og niður í lungu, og þá tók að tosna um slímið í nösunum. Hann andaði með sogi. Fæturnir titruðu aí hrolli, og augun lokuðust fyrir brennandi gufunni. Billi bætti vatni i Pokann og hélt þannig gufunni við í fimmtán mínútur. Loksins lagði

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.