Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 65

Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 65
D VÖL 143 eftir að gefa honum haga hönd. Sveinn Pálsson hefur, sem faðir hans, verið „fjöl- smiður“.... Hann var hið mesta karl- menni, djarfur fram í efstu elli, leggur sífellt á hættur og háskavöð, ekki af létt- úð né fífldirfsku, heldur með varúð, af skyldurækni og nauðsyn. Og hann er alla œvi andlega sinnaður, íhugar, athugar og semur ritgerðir fram undir andlátið. Og honum virðist veitast jafnlétt að fást við lækningar, náttúruvísindi og mannleg rök. í hugarboga hans eru sterk skaphöfn og siðferðilegur styrkur undin í sama streng, er lífinu tókst ekki að rekja sund- ur. En sterk skaphöfn og góð skaphöfn, stórleikur og vöndugleikur, mikilmennska og göfugmennska fara eigi ávallt saman, sem saga mannkynsins segir margan raunaþátt af. Þótt hið mesta mótlæti gnýi fast á honum, stendur hann fastur sem fjallshnjúkur. Og þótt hann færi var- hluta af þeim vísindaframa, er hann var hiaklegur til og hafði unnið til, gekk hann ókalinn á hjarta, með virðing og dáðum settan skjöld inn um hið mikla sáluhlið." Sigurður Guðmundsson bendir á það í formála sínum, að nauðsyn sé á heildar- útgáfu af ritum Sveins Pálssonar. Er það hverju orði sannara. Nú er út komin ferðabók Eggerts og Bjarna, allsnyrtilega hr garði gerð, þótt útgerðin hefði mátt vera með meiri höfðingsbrag. En Sveinn hggur að mestu óbættur hjá garði. Væri bað mannsbragð mikið af röskum útgef- anda að hrinda þessari hugmynd í fram- hvaamd, heiðra með því minningu ein- hvers fágætasta vísindamanns þjóðar vorrar, og setja honum þann bautastein, sem of lengi hefur láðst að reisa. G. G. James Harpole: S p ít al alí f. Dr. Gunnl. Claessen þýddi. ísafoldar- prentsmiðja h.f. — Reykjavík 1944. Þetta er önnur bókin, sem dr. Gunnl. claessen þýðir eftir þennan höfund. Hin fyrri nefndist „Úr dagbókum skurðlækn- ls“ og kom út fyrir tveimur árum, einnig á forlagi ísafoldarprentsmiðju. Báðar fjalla um sama efni: störf og viðfangs- efni lækna, sjúkdóma og slys og bjargráð læknanna, þegar þann vanda ber að höndum. „Spítalalíf" getur ekki talizt til stór- brotinna bókmennta, enda vafalaust ekki gerð krafa til þess. En þetta er læsileg bók og viðfelldin. Hún gefur allgóða inn- sýn í þann heim, þar sem háð er barátta um mannslífin og oft teflt á tæpasta vað- ið. Frásögn höfundarins er ljós og snurðu- laus og framsetningin við alþýðuhæfi. Hann velur ýmis dæmi úr læknisreynslu sinni til frásagnar og fjallar um efnið af varfærni og alúð. — Þýðingin er á lipru máli, ytri frágangur snotur en nokkrar misfellur á prófarkalestri, þó ekki stór- vægilegar. V. J. Fjallið og draumurinn eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson. Útg. Heimskringla. Ólafur Jóhann Sigurðsson er í hópi hinna yngstu rithöfunda okkar. Munu afköst hans einsdæmi af svo ungum manni. Hann hóf rithöfundarferil sinn með því að skrifa unglingabækur og gat sér hinn bezta orðstír fyrir þá iðju. Pyrsta bók hans, sem ætluð var hinum fullorðnu, var skáldsagan Skuggarnir af bænum, og kom út árið 1936. Gaf hún dágóðar vonir um hinn unga rithöfund, og munu fáir íslenzkir rithöfundar á aldri Ó. J. S. hafa sent öllu tilþrifameira byrjandaverk á lesmarkaðinn til þessa. Þó var bók þessi raunar með augljósum byrjandabrag. Næst kom frá hans hendi árið 1940 skáldsagan Liggur vegurinn þangað? er hlaut ómilda dóma. Bar hún mjög svip ýmissa þekktra rithöfunda erlendra og innlendra og var fjarri því að vera heilsteypt ritverk. Raun- ar báru ýmsir kaflar þessarar bókar glöggt vitni um marga kosti, sem vel hefði mátt geta, jafnframt gallanna. Mál og stíll bókarinnar var með glæsibrag og margar lýsingar hennar frábærar af svo ungum manni. Árið 1942 kom svo frá hendi Ó. J.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.