Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 66

Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 66
144 DVÖL S. smásagnasafnið Kvistir í altarinu. Hlaut bók sú góða dóma, en þó sízt von- um fremur, því að hún var vissulega full- komlega sambærileg við smásagnasöfn þriggja viðurkenndra rithöfunda, sem út komu um líkt leyti — og um mál og stíl var hinn ungi rithöfundur jafnvel sum- um hinna eldri meistara mun snjallari. Loks er svo nýútkomin stór skáldsaga, Fjallið og draumurinn, eftir þennan höf- und. Engum, sem bók þessa les, dylst, að Ólafur Jóhann Sigurðsson er nú kominn í röð hinna beztu skáldsagnahöfunda okk- ar. Mál hans er með slíkum glæsibrag, að fáir munu honum snjallari á þeim vettvangi. Stíll hans er fagur og þrótt- mikill og persónulegur, að minnsta kosti á stundum. Hins vegar gerir Ólafur mikið að því að nota sjaldgæf orð, sem vafa- samt er, að sé til heilla fyrir rithöfund, er hefur slíkt vald yfir máli og stíl og hann hefur nú náð. Ó. J. S. þarf ekki að neyta bellibragða til þess að stíl hans og máli sé athygli veitt. í sögu þessari hefur Ó. J. S. valið sér viðfangsefni, sem hann þekkir vel til, og enda þótt bókin sé erfið og þung, tekst honum vel að gera verkefni því, sem hann hefur valið sér, góð skil. Lýsingar hans eru vel gerðar, og að þessu sinni er hann nokkurn veginn jafnvígur á sálarlífs- og náttúrulýsingar. Annars er að svo komnu máli, ekki vert, að fella heildardóm um ritverk þetta, því að ,öll rök virðast að því hníga, að framhalds megi vænta. En það er ekki ráðlegt að kveða upp dóma um hálfunnin verk — að minnsta kosti ekki fyrir þá, sem eigi hafa fyrirfram ákveðið, hver dómsniðurstaðan skuli verða. Að lokum ber þess að geta, að enginn hinna yngri rithöfunda okkar virðist hafa lagt eins mikla og góða rækt við að læra og Ó. J. S., þótt lítt hafi hann gist skóla okkar. Hann hefur numið íslenzkt mál til hlítar, sem hverjum þeim manni ber að keppa að, er bækur hyggst rita. Aðrar tungur mun hann og hafa lagt áherzlu á að nema — eins og bezt sést á hinni snilldarlegu þýðingu hans á bók- hins ameríska galdramanns, Johns Stein- becks, Mýs og menn. — Þessi námsvið- leitni Ó. J. S. hefur raunar haft það í för með sér, að hann hefur orðið fyrir áhrifum meistara, sem ungum rithöfundi er vissulega hollt að kynnast — ef hann er maður til þess að verða ekki þræll þeirra og hermikráka. Fjallið og draum- urinn gefur gleðilegar vonir um það, að hinn ungi og efnilegi rithöfundur muni í framtíðinni verða sjálfstæður í list sinni. Og menntun hans, þjálfun og sjálfsagi hefur valdið því, að hans er nú valdið — og þá eru fyrir hendi, að sögn, haldkvæm- ust skilyrði þess, að hans verði og dýrðin. H. S. íslenzkar þjóðsögur. Safnað hefur Einar Guðmundsson. Leiftur h.f. — Reykjavík 1944. Einar Guðmundsson, kennari, hefur sent frá sér þrjú sagnakver, og kom hið fyrsta út fyrir rúmum áratug, en hið þriðja í röðinni fyrir fáum vikum síðan. Einar heldur laglega á penna og ræður yfir góðum frásagnastíl. Eru kver hans læsileg fyrir þær sakir, þótt ekki verði sagt, að hann hafi aukið verulega við auðlegð íslenzkra þjóðsagna, enda verður þess mjög vart nú upp á síðkastið, að söguefni eru mjög tekin að ganga til þurrðar. Veigamesta frásögn í þessu síðasta kveri Einars er frásögnin um skiptapann við Vestmannaeyjar 16. maí 1901 og ýmsa fyrirburði í sambandi við hann. Auk þess eru í heftinu ýmsar sagnir, sögubrot, ævintýri, alþýðukveðskapur og kímnisög- ur. — Svo er að sjá, sem Einar hugsi sér frekara framhald á útgáfu þessari. V. J.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.