Dvöl - 01.07.1946, Blaðsíða 7

Dvöl - 01.07.1946, Blaðsíða 7
D VÖL 149 dálítið annað til þess að hraða ferð hans. Hann vildi ekki hitta skólabræður sína. Bezti vinur hans í bekknum hafði slitið kunnings- skap við hann, vegna þess að hinir höfðu í barnalegri stéttarmeðvit- und lýst yfir, að það væri smán að umgangast Mauritz, eins og komið væri — hann hafði mætt nokkrum þeirra einn daginn, þar sem hann var með handvagninn í eftirdragi; hann hafði heilsað, en þeir raðað sér upp á gangstéttinni og hlegiö storkandi, um leið og hann dró hlassið fram hjá þeim í kámugum vinnufötum, hlegið storkandi að honum, eins lengi og hann mátti heyra til þeirra. Nei, þá vildi hann ekki hitta á þessari stundu! Hann hljóp með krepptan hnefa og inni- byrgt, örvæntingarfullt hatur. Komið aftur, drengir! Hart móti hörðu, rustaskapur mót rustaskap, og krepptir hnefarnir á kjamm- ana á ykkur, bleyðukvikindi með einfeldingslega derringinn! Ojæja, Mauritz, hatrið það arna og krepptu hnefarnir verða þér að gagni í lífsbaráttunni. Og sú kem- ur líklega tíðin, að þér lærist að skilja, að hæðniorð stráka skipta ekki miklu máli, hvort heldur þeim er beint að óhreinum verka- mannafötum eða hvítum húfum, rósum í hnappagatinu, söngnum og æskugleðinni. — Þarna gekk hann yfir skólagarðinn, lítill, grannholda, en seigur. Stanzaði á miðjum blettinum og kveikti sér í MARTIN KOCH var sænskur rit- höfundur, f. 1882 og d. 1940. Hann ólst upp á fremur fátæku heimili í Stockhólmi. Hann hóf rithöfundarferil sinn með sögunni Ellen, en hún fjall- ar um líf verkakonu og dauða henn- ar af starfssjúkdómi. Hann skrifaði síðan ýmsar skáldsögur, er fjölluðu um líf verkamanna, og var um skeið talinn fremstur þeirra höfunda í Sví- þjóð, sem tóku sér fyrir hendur að lýsa lífi verkamanna. Fremsta verk hans er skáldsagan Guds vackra varld, er gefur glögga sýn í heim hug- ' sjónalífs og félagsmála. Á efri árum sínum skrifaði Koch lítið, en gaf þó út smásagnasafn 1918 og ljóðakver, sem vann sér almenningshylli í Sví- þjóð. vindlingi, vonandi að einhver kennaranna sæi til hans, því að auðvitað verður að vera gaman aö guðspjallinu! — Hann gekk út um skólahliðið og braut um leið að baki sér þær brýr, er tengdu hann við alla bernskudagana í hópi glaðra félaga, lexiur, raunastundir með áminningar, nótur og fall- einkunnir — fagnaðarstundir með dálitla framfaraspretti, verðlaun og hrós kennaranna. — Já, kenn- ararnir! Margar voru nú sögurnar um þá, hina ströngu, hina háðsku, hina geðvondu, hina viðmótsgóöu. Nei, Mauritz var alls ekki að hugsa um það, þar sem hann gekk. Hann hugsaði um það, sem í vændum var. Hann hugsaði um subbulega málaravinnustofu, sem beið hans,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.