Hlín - 01.01.1944, Síða 47
Hlín
45
fjelaginu var því að nýju farið að ræða um sumardvalar-
heimili barna í sveit, samtímis Jdví að hafinn var undir-
búningur undir bygginguna að Leikskálum.'
Vorið 1939 bauð Ingvar Guðjónsson, útgerðarmaður,
kvenfjelaginu að lána nýbýli sitt, Arnarhól við Eyjafjörð,
ókeypis fyrir sumardvalarheimili handa veikluðum börn-
um, sem nauðsynlega þyrftu að komast í sveit. Þessu góða
tilboði fanst okkur við, því miður, verða að neyðast til að
liafna. Okkur fanst tíminn of naumur til undirbúnings,
mest alt liandbært fje okkar höfðum við fest í Leikskál-
um, og þá var ekki farið að veita slíkan styrk frá ríki og
bæjum til sumardvalar barna, sem nú er gert, og síðast
en ekki síst, húsnæðið var nokkuð lítið. Þannig hefði
vart verið hægt að taka meira en 12 börn. Þetta tilboð var
okkur þó mikil livöt til framkvæmda og herti á því, að
við fórum að athuga málið af meiri alvöru og einbeitni
en áður. — En nú var stríðið skollið á og byggingavörur
stigu ört í verði. Við sáum því ekki annað framundan, en
málið yrði að leggjast á Iiilluna í bili, eða meðan svo
stæði. En þá kom I. G. til okkar að nýju og sagði: „Nú
megið þið einmitt ekki bika, biðin verður alt of löng, ef
bíða á eftir því, að byggingarvörur lækki að nýju, og nú
er einmitt auðveldara til fjefanga, en ef til vill nokkru
sinni fyr“. Þetta mál munu [jeir svo hafa rætt sín á milli 1.
G. og B. Barðason skipstj. og meðeigandi I. G. að „Gunn-
vöru“, en báðir eru þeir miklir áhugamenn um öll mann-
úðarmál. Og nokkuð var það, að sýnilega vildu þeir láta
okkur liafa þann bakstuðning, að ekki væri hætta á að
við hopuðum á hæl, því nokkrum dögum seinna f’jekk
jeg tvær heimsóknir sama daginn. B. B. færði mjer banka-
bók með kr. 5 þús., sem gjöf frá „Gunnvöru" til kvenl jel.
til byggingar sumardvalarheimilis handa siglfirskum
börnum, og litlu síðar kom I. G. með aðra bók frá sjálf-
um sjer með 10 þús. kr. í sama augnamiði.
Svo góðum og rausnarlegum gjöfum töldum við okkur