Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 49
Merkir draumar
★
Drauma þá, sem hér fara á eftir hefur hr. Einar Lofts-
son skráð eftir draumamanninum P. J. Morgunn hefur
einu sinni áður birt merkilega drauma eftir þennan óvenju-
lega draumspaka mann og á í fórum sínum fleiri drauma
hans, sem sennilega verða síðar birtir.
Kassinn, ivö hundruð króna virði.
Ég var á leiðinni inn á Patreksfjörð undan vondu veðri,
en þegar komið var inn í miðjan fjörðinn fór ég niður
og lagði mig og sofnaði sem sönggvast. Mig dreymir þá
að ég sé aftur kominn upp á þilfar og sé að drengirnir
mínir em að fást við kassa á þilfarinu. „Farið þið varlega
með þennan kassa,“ segi ég, „hann kostar tvö hundruð
krónur,“ og þetta voru töluverðir peningar á þeim tím-
um. En þeir sinna orðum mínum ekki hið minnsta, gera
sér lítið fyrir og reisa hann upp á rönd, en hann dettur
í sundur, en ég lét þess getið um leið, að þarna hefði ég
tapað tvö hundruð krónum, og við þetta vaknaði ég. Ég
fór svo upp á þilfar, en þar var enginn kassi, enda ekki
til í skipinu. Þetta er eitthvað skrýtið, hugsaði ég með
mér, og segi við stýrimanninn: „Farðu varlega, mig
dreymdi hálf illa.“ „Uss, þú hefur ekkert sofið,“ segir
hann. Síðan gengur hann fram á skipið til að losa atkerið,
við vorum komnir inn á höfn. En svo vill það óhapp til,
að atkerið tekur ekki við sér, eins og sagt er á sjómanna-
máli, heldur rekur skipið út í ála og frá landi. Við „hífð-
um“ upp, en atkerið var horfið. Þetta tók sinn tíma, og
sigldum við að „bauju“ þar á höfninni og festum okkur