Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 45
MORGUNN
123
fyrirbærin, sem gerðust. Fundir hennar voru haldnir í
myrkvuðu herbergi, en svik voru ekki hugsanleg. Hver
röddin af annarri talaði ýmist við frú Wriedt sjálfa eða
fundargestina, en eitt atriðið reyndist sérlega merkilegt.
Dr. Westwood var gestkomandi í Detroit, þar sem frúin
átti heima. En ein röddin, sem fram kom, kvaðst hafa
verið borgarstjóri í borginni, þar sem dr. Westwood átti
heima, en hann þekkti ekkju hans vel. Látni borgarstjór-
inn sagði prestinum frá mörgum atvikum úr einkalífi
þeirra hjónanna og bað hann að spyrja ekkjuna, er hann
kæmi heim, hvort þetta væri ekki rétt. Presturinn hafði
enga hugmynd um þessi atvik, en þegar hann kom heim,
fór hann óðara á fund borgarstjóraekkjunnar, sem stað-
festi að hvert atvik væri hárrétt.
1 ýtarlegu máli rekur dr. Westwood í lok bókar sinnar
sannanagildi þeirra fyrirbrigða, sem hann hafði orðið vott-
ur að, en það er of langt mál til þess að rekja það hér.
Nokkurn kafla helgar hann hugleiðingum sínum um sálar-
rannsóknamálið og kristindóminn. En flestum þeim, sem
sálarrannsóknunum kynnast, fer líkt og próf. Haraldi
Níelssyni, að þeim finnst, sem þarna opnist nýir mögu-
leikar til að skilja frumkristnina og þann furðuheim krafta-
verkanna, sem elztu söfnuðir kristninnar lifðu í.
Jón Auðuns.