Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 5
MORGUNN
83
Para-
psychologie.
ystu um vísindalegar sálarrannsóknir, enda hefur það tíð-
um átt afburðamönnum á að skipa til slíkra rannsókna.
Nú virðist vera að koma breyting á þetta,
og þessa elzta og virðulegasta allra sálar-
rannsóknafélaga gæti ekki eins og oftast
fyrr. Aftur er vaknaður mikill áhugi fyrir vísindagrein
þeirri, sem nefnist Parapsychologie og fæst við flest sömu
viðfangsefnin og sálarrannsóknamennirnir hafa glímt við.
Félög hafa verið stofnuð í nokkurum löndum, sums staðar
í beinu sambandi við háskólana, til þess að reka þessar
rannsóknir. 1 félögum þessum eru allmargir spiritistar
starfandi og einnig margir, sem ekki vilja viðurkenna
skýringar spíritistanna á fyrirbrigðunum. Forvigismaður
þessara rannsókna er hinn lærði sálfræðingur dr. J. B.
Rhine, prófessor við Duke-háskólann í Bandaríkjunum.
Mjög kemur einnig við sömu sögu þessarar nýju tegundar
sálarrannsókna frú Eileen Garrett, sem hvorttveggja er
í senn, fræg fyrir miðilsgáfu sína og mikil lærdómskona
í sálarrannsóknum.
Svo mikið nám skipar spiritisminn í ensku þjóðlifi, að
ríkiskirkjan, biskupakirkjan, hefur ekki getað látið sig
málið engu skipta. Fyrir allmörgum árum skipaði erki-
biskupinn af Kantaraborg nefnd,
sem átti að rannsaka fyrirbrigðin
og sannanirnar, en svo tókst samt
til, að niðurstöður nefndarinnar
hafa aldrei verið birtar opinberlega í heild, og fyrir löngu
er vitað og upplýst af mönnum, sem í nefndinni voru,
að niðurstöður nefndarinnar voru svo hliðhollar spírit-
ismanum, að dr. Lang, erkibiskup, vildi ekki láta birta
þær í nafni kirkjunnar. Þó eru þær fyrir löngu orðnar
almenningi kunnar frá sumum nefndarmanna sjálfum. Nú
hefur dr. Fischer, núverandi erkibiskup af Kantaraborg
og annar æðsti maður kirkjunnar, erkibiskupinn af York,
skipað nefnd manna til að rannsaka andlegar lækningar.
Nefndina skipa kunnir sálarrannsóknamenn, sálfræðingar,
Enska biskupakirkjan
lætur rannsaka
andlegar lækningar.