Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 15
Séra Kristinn Daníelsson,
præp. lion., fyrrum álþingisforseti.
LíkrœÖa, er séra JÓN AUÐUNS dómprófastur flutti í dómkirkjunni
21. jiilí 1953.
★
Þegar ég mæli eftir hinn göfuga öldung, séra Kristin
Daníelsson, sem fyrrum var prófastur, alþingismaður, al-
þingisforseti og gegndi mörgum öðrum trúnaðarstörfum
fyrir þjóð sína, er mér mikill vandi bundinn. Ekki aðeins
vegna þess, að líf hins hára öldungs spannaði yfir tíma-
bil, sem náði hátt á öld, heldur einnig og miklu fremur
vegna hins, hve líf hans var auðugt bæði af þeim mann-
kostum, sem honum voru meðfæddir, og því, hvernig
hann ávaxtaði þann sjóð.
Sú mikla saga, sem vér reynum að hafa útsýn yfir í
dag, hófst á hinu fornfræga setri margra höfuðklerka
fyrri alda, Hrafnagili í Eyjafirði. Þar fæddist séra Kristinn
18. febrúar 1861, en foreldrar hans voru merkispresturinn
séra Daníel Halldórsson og kona hans frú Jakobína Soffía
Thorarensen. Eru þeir ættstofnar kunnir og frá þeim tók
hinn ungi sveinn þær kynfylgjur, sem stóðu um hann
vörð til æviloka, í full 92 ár. Á þessu gamla hefðarsetri
ólst séra Kristinn upp með sex systkinum sínum, sem öll
eru fyrir löngu farin af þessum heimi. En þeirra systkina
varð, auk séra Kristins, Halldór bæjarfógeti kunnastur.
Heimilinu að Hrafnagili lýsir séra Kristinn nokkuð í rit-
gerð um móður sína, er kom út í ritsafninu Móðir mín,
og sjálfur bar hann þess fagran vott, hvernig æskuheimilið
hans hafði verið, en hann var „aristokrat“, höfðingsmað-
ur af gamla skólanum, bæði fyrir uppeldi og erfð.
Hann fór ungur í Latínuskólann og lauk prófi bæði