Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 16

Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 16
94 MORGUNN þaðan og síðan frá Prestaskólanum með hárri fyrstu einkunn. Hann var mikill námsmaður og þegar á skóla- árunum kom fram hjá honum iðni hins grandvara og samvizkusama manns. Jafnhliða tók hann drjúgan þátt í skólalífinu og naut gleði heilbrigðra æskumanna. Hann átti margar skemmtilegar minningar frá skólaárunum, sem hann hafði gaman af að rifja upp. Minni hans var traust. Síðustu árin talaði hann um 80 ára gamla atburði, eins og hefðu þeir gerzt þann sama dag. Hann var bekkj- arbróðir og góðvinur Níelsar Finsens, og var ánægjulegt að heyra hann segja fram minningar sínar um hinn heims- fræga uppfinningamann og aðra kunna menn, sem farnir eru af jörðunni fyrir hálfri öld eftir merkilegt dagsverk. Þegar að afloknu prófi í guðfræði, vígðist hann hér í dómkirkjunni til Sanda-prestakalls í Dýrafirði, og nú er hann kvaddur hér í dag í sama gamla guðshúsinu og hann var vígður í fyrir 69 árum. Líkför hans fór eftir gömiu Skólbrúnni, sem fætur hins glaða stúdents gengu að loknu glæsilegu stúdentsprófi fyrir 71 ári og fjórum dögum. Vinsældir séra Kristins í Sanda-prestakalli urðu snemma miklar, enda voru honum falin þar ýms trúnaðarstörf, svo sem í amtsráði og sýslunefnd, og með miklum sökn- uði var hann kvaddur, er hann fór að vestan árið 1903 og fluttist suður að Útskálum. Þar var hann prestur og prófastur fram til 1916, er hann fluttist til Reykjavíkur. Þar syðra urðu vinsældir hans hinar sömu og fyrir vestan, og söknuðurinn hinn sami, er hann kvaddi. Svo stórt rúm skipaði séra Kristinn, að tómið var stórt, er hann fór. Hann var sómi íslenzku kirkjunnar, hinn gáfaði, grandvari og fyrirmannlegi klerkur, enda kveður íslenzka kirkjan einn sinna beztu sona í dag. Kveðjur hennar og þökk ber ég hér fram, vegna þess að biskup landsins er fjarri. Á Útskálaárunum átti séra Kristinn þingmennskuferil sinn, en hann var þingmaður sinna gömiu samsýslunga í Vestur-ísafjarðarsýslu árin 1909—11, og þingmaður Gull-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.