Morgunn


Morgunn - 01.06.1947, Page 34

Morgunn - 01.06.1947, Page 34
28 MORGUNN bæri nokkuð þunga fatatösku. Ég sá, að taskan var þakin af miðum, sem límdir höfðu verið á hana í ýmsum lönd- um, sem konan hafði sennilega ferðast um. Ég tók nákvæm- lega eftir litnum á klæðnaði hennar og efninu, sem hann var gerður úr. Konan var stórvaxin og ekki liðlega vaxin. Augu konunnar voru sérkennileg, eiginlega ekki sérlega falleg, en skýr og athugul og gáfuleg, en báru þó vott um hlédrægni og feimni. Þau voru blá að lit. Ég lýsti þessari kvenveru fyrir vinkonu minni, og sagði við hana, að ég væri viss um, að fundum mínum mundi síðar bera saman við þessa konu. Ég tók þetta svo alvarlega, að ég skrifaði þetta allt í dagbók mína. Nokkrum mánuðum síðar var mér lánuð bók til lestrar, en svo mikiö lá á að skila henni aftur, að ég mátti ekki hafa hana lengur en í fáeinar klukkustundir. Auk þess, að mér féll efni bókarinnar vel í geð, fann ég á mér, að höf- undurinn og ég myndum eiga mikið sameiginlegt. Nokkru síðar laust þeirri hugsun niður í mig, að höfundur þessarar bókar væri konan, sem ég hafði „séð“ við dyrnar mínar með ferðatöskuna. Ég hefi enga hugmynd um, hvernig mér gat komið þetta til hugar. Það var þó ekki fyrr en nokkru eftir þetta, að mér datt í hug að skrifa höfundinum og bjóða henni að koma til mín og vera hjá mér næturlangt. Hún þáði boð mitt og kom, og þegar ég stóð andspænis henni til þess að heilsa henni í viðhafnarstofunni heima hjá mér, var þetta nákvæmlega sama konan, sem ég hafði séð með sálrænni sjón minni svo löngu áður. Hún vakti máls á þvi, meðan við vorum að drekka te saman, að ég rannsakaði sig svo einkennilega og gaumgæfilega, og spurði, hversvegna ég gerði það. Ég sótti dagbókina mína og las henni það, sem ég hafði skrifað þar um sýnina, sem ég hafði séð. Hinir ósýnilegu þræðir, sem leiddu okkur saman, urðu til þess að knýta vináttu, sem ég vona að lifi lengi. Er það einn þátturinn í ráðsályktun tilverunnar, að á- kveðnar manneskjur verði á leið okkar og ákveðin reynsla

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.