Morgunn


Morgunn - 01.06.1947, Side 37

Morgunn - 01.06.1947, Side 37
MORGUNN 31 rænni skynjun hennar. Frá þessu dæmi segir hún fyrst: Vinafólk hennar ætlaði að leigja út herbergi í húsi sínu. Þá kom upp sú löngun hjá henni, hvort hún gæti fengið vitneskju um, hver mundi taka herbergin á leigu, og frá því, hvernig undirvitund hennar starfaði, segir hún á þessa leið: „Eftir sálrænum leiðum fékk undirvitund mín að vita, að einhver með nafni, sem byrjaði á F . . . eða e. t. v. E., myndi spyrja um herbergin. Því næst sá undirvitund mín lækni nokkurn, sem ég þekkti lauslega, og hét nafni, sem byrjaði á F, koma gangandi niður tröppurnar á húsinu, sem herbergin, er voru til leigu, voru í. Fyi’st var undir- vitund mín í vafa um F . . eða E. . en varð síðar viss um að stafurinn var F. Því næst hélt hún áfram og komst að þeirri niðurstöðu, að þetta fólk mundi verða setzt að í hús- inu innan eins mánaðar. Þegar þetta gerðist, hafði engum komið til hugar, að þetta fólk tæki herbergin á leigu. Þetta fólk vissi ekki einu sinni að herbergin væru til leigu og hafði alls ekki hugsað sér að flytjast þaðan, sem það bjó. Svo að öllum hlýtur að vera ljóst, að þarna gat ekki verið um fjarhi’if eða hugsanaflutning að ræða. Hið furðulega við þetta allt er það, að það, sem hugur minn hafði þarna náð í, reyndist bæði rétt og rangt! Alveg óvænt fréttu þau F. læknir og kona hans, að þessi herbergi væru til leigu og ákváðu að taka þau, tæpri viku eftir að ég hafði skynjað þetta. En tilviljun, ef nokkur tilviljun er til, réði því, að þessi ráðagerð varð að engu og hjónin fóru aldrei í hei’bergin. En nú skulum við snúa okkur að hinni upprunalegu spurningu: hver tekur herbergin á leigu? — Undirvitund mín var ennþá að vinna að bókstöfunum E . . og F . ., sem hún hafði fyrst fundið. Nú þóttist hún fá vitneskju um það, að það væri sjötti stafurinn í stafrófinu, nfl. F. . .,

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.