Morgunn - 01.12.1951, Síða 13
MORGUNN
95
vottar að ósvikinni spjaldskrift og líkamningafyrirbrigð-
um. Merkilegar orðsendingar komu frá honum í transin-
um. En hann skildi ekki lögmál andsetninnar, þess að
menn geta komizt undir varanleg áhrif frá öndum, og
jarðbundnir andar náðu valdi yfir honum, svo að hann
varð of ágjarn til peninga. Hann leiddist til óheiðarlegra
athafna. Hinir góðu stjórnendur hans frá hinum heim-
inum hurfu þá frá honum, jarðbundnu andarnir náðu á
honum fullum tökum, leiddu hann út í fullkomið svall
og gjálífi, sem endaði með því, að hann drýgði sjálfsmorð.
Síðar kom andi hans á fund hjá okkur, talaði við mig
af vörum frú Wicklands og bað aumkunarlega um hjálp.
Hann sagði mér, að hann hefði verið fullkomlega heiðar-
legur í starfi sínu hin fyrri árin, en konan, sem hann hafði
kvænzt, hefði reynzt óheiðarleg og svikamiðill á valdi
eigingjairnra og hrekkjafullra anda. Þessi lágu öfl hefðu
svo náð tökum á honum, sem hafði óvenjulegan sálrænan
næmleika, og vegna þess, að hann þekkti ekki lögmál
andsetninnar, náðu þau valdi á honum, sem lauk með
þeim ósköpum, sem áður greinir.
Einhverju sinni kom til okkar ung stúlka frá Chicago.
Hún kom til að leita hjálpar, hafði sótt miðilsfund og
setið þar við hlið konu einnar, sem tók að hristast og
skjálfa meðan á fundinum stóð, og sagði þennan hristing
og skjálfta stafa frá andaáhrifum. Þessi kona sagði ungu
stúlkunni nú, að hún væri gædd miðilsgáfu og bauð henni
að koma á fundi hjá sér til að þjálfa þessa gáfu. Stúlkan
hafði gert þetta, en afleiðingin varð sú, að hún komst
undir áhrif jarðbundins anda, og það svo mjög, að hún
fór daglega að heyra raddir þeirra, og leitaði loks hjálp-
ar hjá okkur. Meðan við vorum að tala við hana, fór hún
undir andaáhrif og ég spurði andann, sem virtist vera
þama að verki: „Hver ertu?“
,,Ég er lítil stúlka frá sjöunda sviðinu", var svarið.
„Lítil stúlka frá sjöunda sviðinu myndi ekki koma hing-