Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Side 16

Morgunn - 01.12.1951, Side 16
98 MORGUNN hve margir miðlar vinna af sannleikshollustu og ráðvendni alla ævi, þrátt fyrir skilyrðin, sem þeim eru búin af ábyrgðarlausum og eigingjömum fundagestum, sem leita sambandsins hjá þeim af ómerkilegri forvitni einni sam- an, e. t. v. frá báðum hliðum tilverunnar. 1 fomöld skildu menn gildi véfréttanna. Þeir drógu sál- ræna fólkið út úr daglegu samneyti við þekkingarlausan almenning, byggðu því musteri, sköpuðu því umhverfi, sem var þrungið af yndisleik og fegurð, létu það engar áhyggjur hafa af efnalegri afkomu, leiddu það inn í must- eri þagnarinnar . . . og þannig sköpuðu þeir miðilsgáfunni hin fullkomnustu skilyrði. Það, sem oss hlotnast hjá góðum og hreinum miðli, ynd- isleikurinn, hreinleikurinn og meðvitundin um að vera að veita öðrum mannssálum blessun og hjálp, veitir miðlin- um sjálfum ómælanlega hamingju, hamingju, sem er andleg og eilíf.“ Sálrænar tilraunir eiga menn að stunda með það fyrir augum, að láta kærleikann ráða starfinu öllu, bæði fyrir látna menn og þá, sem enn eru á jörðunni. Vér megum ekki gleyma því, að ógæfa marga þeirra, sem yfir landa- mærin eru komnir, stafar fyrst og fremst af heimsku- legum hugmyndum, sem að þeim var haldið á jörðunni, röngu lífemi og heimskulegri vantrú. Þeir, sem við sál- rænar tilraunir eru að fást, verða að láta kærleikann kenna sér þetta. J. A. þýddi.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.