Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Page 21

Morgunn - 01.12.1951, Page 21
MORGUNN 103 að hún væri að flytja skilaboð frá gesti, heldur en að hún væri að segja frá skyggnigreiningu. sjálfrar sín. Feda: „Já, hann virðist hafa komið, en hann hefur ekki komið með hinum. Nei, hann er ekki með þeim, en hann hefur dregizt hingað og fundið leiðina, vegna þess að hann þekkti þig.“ C.D.T.: Langar þennan fésýslumann til að tala sjálfan? Feda: „Hann virðist ekki vita, hvernig hann ætti að gera það. Ég tók bara eftir, hvernig ástandi hans var háttað. Það er eins og hann hafi dregizt að einhverjum, af því að enginn annar hefur reynt að tala við hann. Það er eins og hann sé hálfruglaður. Hann hefur ekki verið lengi hjá okkur.“ (Þetta benti fremur til skyggnigreiningar af hálfu Fedu, heldur en endurtekningar á skilaboðum frá þessum ókunna gesti.) Feda: „Ég sé ennþá bókstafinn C.“ (Ég hugði, að hér væri aðeins um endurtekningu á áðurgreindum bókstaf að ræða, en þegar ég las ekkju hans það, er Feda hafði sagt mér, sagði hún: „C er upphafsstafur í skímarnafni mínu, ég heiti Constance“.) Þannig fórust Fedu orð um mann þennan, sem ég gat ekki áttað mig á, hver væri að því sinni. Athugasemdir föður míns og systur minnar (bæði látin), sem benda til skýringar á því, er gerðist, læt ég fylgja með. Feda: „John (faðir minn) langaði einmitt til að segja þér, að hópur manna, sem hefðu enn ekki yfirgefið lík- ami sína fyrir fullt og allt, væm starfandi hjá okkur stutta stund í senn, og þeim fjölgaði stöðugt." C.D.T.: „Eru það máske einhverjir, sem liggja meðvit- undarlausir í sjúkrahúsum eða heimilum sinum, eða á það sér stað, að þeir séu jafnframt á ferli hérna hjá okk- ur með fullri meðvitund um sjálfa sig?“ Feda: „Stundum getur svo verið, ef um örstutta stund er að ræða og þeir geta orðið hér að liði, þeir kunna sam- tímis að vera á gangi með ykkur á götunni, en eins og í hálfgerðri leiðslu eða utan við sig, að ykkur gæti virzt.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.