Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Side 32

Morgunn - 01.12.1951, Side 32
Tilviljun o Úr bók Margaret Gordon Moore: Coincidenee—? Herra Elson var greindur og raunsær maður, og konan hans var honum talsverð ráðgáta, en hún var fyrirtaks góð kona og falleg. Hann var hreykinn af útliti hennar, fágaðri framkomu, mjúkri rödd hennar, — en fyrst og fremst af skarpri skynsemi, sem hún var gædd. Hann gat talað við hana um viðskiptamál og þegið af henni góð ráð í þeim efnum. En fyrir kom hitt, að hún fór út fyrir þau takmörk, sem raunsæ skynsemi hans setti hon- um, og honum geðjaðist ekki að því. Honum var það minnisstætt, að einu sinni eða tvisvar hafði hún talað við hann um ósýnilega hluti á þann hátt, að honum féll ekki og hann gat ekki samsinnt. Þetta var honum ógeðfellt og hann sagði: „Taktu ekkert af þessari vitleysu alvarlega, elskan mín. Þú ert alltof gáfuð kona til þess að láta fáeinar tilviljanir gera þig trúgjama eða fylla þig, eins og marga aðra, hjátrú á anda og krafta- verk. Það er auðvelt að láta blekkjast.“ ,,En ég hef alls ekki látið blekkjast,“ svaraði Elvíra og brosti elskulega við manni sínum. „Þú veizt það, Elvíra, að mér geðjast ekki að því, að þú sért að fást við þessi þokukenndu og fánýtu fyrirbrigði, og mér væri afar ógeðfellt, ef þú færir nú að sjá sýnir, verða fyrir dularfullum hlutum, þótt einhverjar tilviljanir gerist einstöku sinnum, — ég veit að þær gerast. En, elsk- an mín, þetta er ekki annað en tilviljanir, og þannig verð- ur skýr og heilbrigð kona, eins og þú, að líta á þær.“ Þetta var gamalt umræðuefni og margþvælt. Hún vissi,

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.