Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Page 33

Morgunn - 01.12.1951, Page 33
MORGUNN 115 að honum var innilega illa við allt þetta. sem hann kallaði dulræna vitleysu, og að hann trúði ekki öðru en því, sem hann gat séð og farið höndum um. Þessi eini litli skuggi var á sambúð þeirra, og hún forðaðist að halda sínum sjónarmiðum að honum. Af skynsemi sinni sá hún, að þetta, sem henni þótti svo vænt um, átti einhvem veginn enga leið inn að hjarta hans, en hún elskaði hann og ást hans til hennar var henni afar dýrmæt. Hún var stöðugt að vona, að hann losnaði við þessa hleypidóma, en hún ákvað, að þangað til svo yrði, skyldi hún forðast þetta umræðuefni, sem var honum svo ógeðfellt. Hún ætlaði að bíða átekta. Þegar hún sá ógeðið speglast í andliti hans, flýtti hún sér að taka upp umtalsefni, sem hún vissi, að hann hefði sterkan og varanlegan áhuga fyrir. John Elson var allt annað en heimskur maður, og hon- um þótti vænt um, hve elskulega og skynsamlega konan hans svaraði gagnrýni hans á þessu sérstaka efni. Sumar konur aðrar hefðu farið að útskýra og rökræða, orðið móðgaðar eða jafnvel þótzt vita miklu betur. En samt gat hann ekki annað en óskað þess með sjálfum sér, að konan hans vildi halda sér betur við jörðina og hætta þess- um ferðalögum sínum inn í heim, sem hann hvorki gat né vildi verða henni samferða inn í. Hann vildi hvergi hafa þetta dularfulla og ósýnilega, nema í Biblíunni. Þar stóð það og þar átti það heima. John var trúrækinn maður. Hann sótti kirkju og gekk jafnvel til altaris, og hann hefði hrokkið við og brugðizt reiður við, ef einhver hefði leyft sér að bregða honum um, að hann væri efnishyggjumaður, eða eitthvað í þá áttina. Hann hélt því hiklaust fram, að ekkert annað en staðreyndir hefðu áhrif á sig, og að þetta væri skynsam- legt sjónarmið. Auðvitað vissi hann, að tilviljanir væru alltaf öðru hvoru að gerast, en að þær væru óskiljan- legar. Að fyrir kæmi, að tveir menn væru samtímis að hugsa um að líta inn hvor til annars og mættust á miðri

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.