Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Side 36

Morgunn - 01.12.1951, Side 36
118 MORGUNN Skyndilega heyrði hann lága og mjúka rödd — rödd konunnar hans —, og hún sagði greinilega: „John . . . Hann leit upp og hann sá hana standa þarna í mjúka kvöldsloppnum sínum. Hún hélt höndunum út í áttina til hans og sagði: „Hlustaðu á, elsku vinur; ég var að aka í leiguvagni, en flutningabifreið ók á okkur og gereyði- lagði vagninn. Þetta var klukkan fimmtán mínútur fyrir ellefu. Þú verður að trúa því, að ég er lifandi, og mundu það, elsku vinur, að syrgja mig ekki.“ John Elson stökk reiður á fætur. Þeirri hugsun laust ofan í hann, að Elvíra væri að gabba hann vegna þess, hve vantrúaður hann væri, en samstundis varð honum ljóst, hversu heimskulegt, bjánalegt slíkt væri og ólíkt konunni hans. Hann þurrkaði sér um ennið með vasa- klútnum sínum og sagði órólegur við sjálfan sig: „Ég hef undir niðri verið smeykur um hana. Ég hef ímyndað mér þetta. Ég ætla að hringja til Klöru,“ og hann hljóp að símanum, sem einmitt hringdi ákaft um leið. Hann greip heymartækið og greinileg rödd Klöru var í símanum: „Er þetta þú, John?“ „Já, er Elvíra ennþá hjá þér?“ „Nei.“ Nú dró niður í Klöru og hann heyrði hana grípa andann á lofti. Þá varð henni þungt um mál, en hún sagði: „Geturðu komið hingað fljótt — það hefur orðið — slys — ó, komdu fljótt." Klara andvarpaði og þagnaði. „Ég skal vera kominn innan fárra mínútna." John sleppti heyrnartækinu, hann brá hendinni yfir augun, opnaði dymar, og hattlaus hljóp hann út á götuna og náði í leiguvagn. Klara beið hans, náföl og tekin, en neytti ýtrustu átaka til að vera róleg. Stundarkom leið svo, að hún mátti ekki mæla, en þá byrjaði hún með erfiðismunum: „Elvíra — Elvíra fór ut frá mér klukkan tuttugu mín- útum fyrir ellefu í kvöld — henni dvaldist lengur hjá bér nú en vant er — Ó, John, — þetta er hræðilegt." Hún gafst upp, andlitið afmyndaðist af sorg og með-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.