Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Side 37

Morgunn - 01.12.1951, Side 37
MORGUNN 119 aumkun, og tárin streymdu, stór og þung, niður kinnar hennar. Henni varð um megn að halda áfram að tala. „1 Guðs bænum, segðu mér allt“, bað John. „En vertu fljót, er hún hjá þér?“ Hún sá, hve þjáning hans var óskapleg, og reyndi með erfiðismunum að halda áfram: „Þeir fluttu Elvíru til sjúkrahússins, en hún var dáin. Hún þjáðist ekki, þetta varð allt með svo snöggum hætti. Vagnstjórinn slapp ómeiddur. Hann gaf þeim upp heimilis- fang mitt, og þess vegna hringdu þeir til mín, en ég fór óðara í símann, til að gera þér aðvart. Þetta gerðist klukkan fimmtán mínútum fyrir ellefu — þetta er hrylli- legt,“ hvíslaði hún og grét sáran. Andlit hans var orðið eins og steinrunnið. Nú var ljós lifs hans slokknað. Yndislega, aðdáanlega konan hans var dáin. Hvað hafði hún sagt, eða hvað hélt hann að hún hefði sagt? „Þú verður að trúa því, að ég er lifandi,“ — Jæja, ekki var það þá rétt, — og hitt, það var tilviljun. Ekki kom honum það til hugar, þessum sorgum slegna manni, sem var óhagganlegur gegn öllu, sem ekki varð höndum um farið eða jarðneskt, að vera kynni að í krafti kær- leika síns hefði konan hans verið fær um að vitja hans á andlátsaugnablikinu, til þess að fullvissa hann um, að hún væri enn lifandi. Hann hugsaði oft síðar um þessa kynlegu reynslu, en gat aldrei sannfærzt um, að hún hefði verið veruleikur. Hann gerði sér í hugarlund, að hann hefði verið órólegur, eitthvað úr jafnvægi og þreyttur eftir vinnuna þetta kvöld. Hann áleit þetta ekki annað en kynlega tilviljun, og hann minntist hennar sjaldan í einstæðingslífi sínu síðar, en hann giftist ekki aftur. Hjarta hans var brostið, og huggunin, sem Elvíra hans hafði ætlað að gefa honum, fann ekki leið inn að hjarta hans. Þeirri leið hafði hann sjálfur lokað...... J. A. þýddi lausl.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.