Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Page 54

Morgunn - 01.12.1951, Page 54
136 MORGUNN endilangt landið. Og þó hjálpaði spíritisminn mér ennþá meira, þegar ég tók fyrir að skrifa sögulegar skáldsögur. Ég hef talað við enska rithöfunda um „innblásturinn". Þeim hefur farið eins og mér, að þegar þeir hafa eftir á lesið einhverja af bókum sínum nýprentaðar, þá hafi þeim orðið á að spyrja sjálfa sig: Hef ég raunverulega skrifað þetta, eða var mér gefin andleg hjálp frá einhverjum öðrum heimi?“ Frú Thit Jensen ritar langa kafla um vinnuaðferðirnar, sem hún notaði, þegar hún skrifaði hinn mikla og merki- lega sagnabálk sinn um sögulegar persónur, og hún vík- ur að þvi þar, hvemig hún hafi oftar en einu sinni fengið dulrænan innblástur, sem hún fór eftir, þegar hún var að skapa persónumar í þessum bókum. Og bókinni, sem ég hef verið að segja hér frá, lýkur hún með þessum orðum: „Enn sé ég ljóslifandi fyrir augum mér klettinn, sem ósigrandi rís úr hafinu við Færeyjar, og hafið teygja armana árangurslaust eftir klettinum, til þess að draga hann til sín ... þannig grípur mannsandinn eftir lausn- inni á gátu tilveru sinnar. Hvaðan? Hvert? Hversvegna? Ef mannsandanum tekst nokkumtíma að leysa þýðing- armestu gátu tilveru sinnar, verður það spíritisminn einn, sem leysir gátuna. Andinn og vísindin í samstarfi.“ J.A.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.