Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Side 58

Morgunn - 01.12.1951, Side 58
140 MORGUNN daglegum störfum sínum aftur og rótaði í bókabúnka, las hann bók, sem hann hafði fengið eftir Topelius: Bæn Karls XII. við Narva. Undir áhrifum frá þessari bók og samkvæmt næturvitruninni gerði hann nokkrar breyting- ar á handriti sínu. Upprunalega hafði hann ekki ætlað sér að minnast á trúarlíf í frásögn sinni, en nú gerði hann breytingu á því og lét trúaráhrifin í lífi Karls XII. njóta sín.“ Draumur fyrir daglátum. Eftirfarandi draum dreymdi mig þegar ég var 12 ára. Ég þóttist vera staddur í dal, sem ég ekki þekkti og hafði ekki áður komið í. Dalur þessi sýndist mér mjög langur, en fremur þröng- ur. Stór á rann eftir dalnum. Marga bæi sá ég í dalnum, og sýndist mér víða mikið lengra á milli bæjanna en í Aðaldal í S.-Þingeyjarsýslu, þar sem ég átti heima. Ég sá, að austanverðu dalsins voru víðast hvar allháar heiðarbrekkur, en ekki brattar. Að vestanverðu dalsins sýndist mér hár og brattur f jallgarður, og var þar miklu meira af djúpum giljum og grafningum en að austan- verðu. Mér fannst ég vera nyrzt í dalnum að austanverðu. Held ég nú suður dalinn og fer fram hjá tveimur bæjum. En er ég kem á móts við þriðja bæinn, fer ég þangað heim. Hittist þá þannig á, að þar eru 2 menn á hlaðinu. Ekki þekkti ég þá. Þessir menn voru að járna rautt hross, og tók ég eftir því, að hrossið hafði klaufarhóf á einum fæt- inum. Það þótti mér undarlegt, að mér virtist vera spöng yfir skeifuna þvera á klaufarhófnum. Ég minnist þess ekki að ég hefði tal af þessum mönnum eða stanzaði þar lengur en meðan ég veitti eftirtekt því,

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.