Morgunn


Morgunn - 01.12.1951, Side 81

Morgunn - 01.12.1951, Side 81
MORGUNN 163 Ég vil aðeins drepa á eitt fyrirbrigði af mörgum, sem ég hef sleppt að geta um. Á mörgum fundum voru gerð- ar tilraunir til þess að „hinir ósýnilegu gestir“ gætu gert sig sýnilega, því áður hafði þetta tekizt, þó sjaldan væri og sáust þá í myrkrinu meira eða minna ljósar manna- myndir í skínandi hjúp, sem lýsti í myrkrinu, að því er mér er sagt. Tilraunir þessar heppnuðust aldrei, en margt kynlegt bar við á fundum þessum. Oft kom þannig gust- ur mikill eins og vindur blési í lokuðu, gluggalausu her- berginu, og náði þessi vindstroka stundum yfir margra álna svæði og það með svo miklu afli, að blöð blöktu í opinni skrifbók, sem lá á hné mínu. Með gusti þessum heyrðist ekkert hljóð, sem skýrt gæti, hversu á honum stæði. Mér var hann því alveg óskiljanlegur. Ég vil ekki telja fleira. Það yrði of langt mál. Að end- ingu verð ég þó að geta þess, að þrátt fyrir fjölda at- hugana varð ég aldrei þess var, að gæzlumaður sá, sem fyrr er drepið á, og jafnaðarlegast hafði gætur á miðl- inum, hefði nein brögð í frammi. Þvert á móti voru allar athuganir hans keipréttar og glöggar, þar sem ég gat dæmt um. Aðeins í eitt sinn varð ég var við dálítinn af- sakanlegan misskilning, sem stafaði af myrkrinu. Maður þessi hefur öllum framar haft óvenjuiega gott tækifæri til þess að kynnast fyrirbrigðunum, svo gott, að hann hefði hlotið að vera meira en blindur, til þess að iáta sí- fellt leika á sig. Dómur hans um fyrirbrigðin er sá, að enginn minnsti vafi geti verið um virkileik þeirra. Og hann er maður sannorður og vel metinn af öllum. Guðm. Hannesson.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.