Morgunn - 01.12.1951, Page 82
John Wesley,
prédikarinn og trúvakningarmaðurinn mikli, sagði:
„Þrásinnis er ég spurður: Hefur þú nokkum tíma séð
svip framliðins manns? Nei, en ég hef heldur aldrei séð
framið morð, og samt trúi ég, að slíkt sé til. Já, og morð
er daglega framið einhvers staðar á jörðunni. Þessvegna
er óskynsamlegt að neita þeirri staðreynd. Vitnisburður
trúverðugra votta nægir mér til að trúa á hvoru tveggja.
Og þessir vitnisburðir ná aftur til grárrar forneskjunn-
ar. Philó (hinn frægi heimspekingur Gyðinga, sem var
uppi á árunum 20 f. Kr.—40 e. Kr.) segir, að það sé göm-
ul trú meðal Gyðinga, að sálir góðra manna starfi sem
þjónandi andar. Heiðnir menn hafa trúað því frá örófi
alda, að sálir látinna vina héldu áfram að fylgjast með
þeim, og sýndu þeim virðingu að launum. Þessi trú ligg-
ur til grundvallar þeirri ævagömlu siðvenju, að taka kon-
unga og hetjur í guða tölu.
Fullkomnun sálarinnar stendur ekki í sambandi við lík-
amann, hún getur starfað án hans, já, miklu betur utan
hans, því að þá hefur hún fengið sitt fulla frelsi og er
laus undan þeim þungu fjötrum, sem binda hana og há
henni
Vera kann, að dýrlegir andar, sem náð hafa fullkomn-
un, starfi að því að framkvæma vilja Guðs serh þjónandi
andar. Vera má, að þeir þjóni vinunum, sem þeir unnu á
jörðunni, og vaki yfir þeim.“