Morgunn - 01.06.1957, Page 22
16
MORGUNN
ekki sagðar ástæðurnar, en svo rækileg voru vinslit systr-
anna, að börnum þeirra var bannað að umgangast. Árin
liðu og fullkominn aðskilnaður var þessara nánu fjöl-
skyldna. Þegar frúin fékk einkafundinn með Doris Gren-
well, var móðir hennar látin, en móðursystirin var enn á
lífi 'hér í heimi. Eftir lát móðurinnar hafði móðursystir-
in boðið þessari systurdóttur sinni að heimsækja sig. Hafði
hún tekið boðinu og talað við frænku sína um skoðun sína
á orsökinni að sundurlyndi systranna, en móðursystirin
hafði ekki viljað ræða frekar um það mál.
Einkafundurinn hófst kl. hálf níu að kveldi og móðirin
virtist koma að sambandinu, dóttirin var sannfærð um,
að hún væri að tala við hana. Þær ræddu saman lengi um
þetta gamla leiðindamál í fjölskyldunum, en þá sagði móð-
irin: Nú sefur systir mín heima hjá sér, ég ætla að fara
og vita, hvort ég get ekki fengið hana sjálfa að samband-
inu. Eftir nokkra stund tjáðist móðursystirin koma að
sambandinu og hún talaði við systurdóttur sína um þetta
gamla vandræðamál, og játaði, eftir nokkra undanfærslu,
að skoðun frænku hennar á málinu væri rétt. Þá kom
látna móðirin aftur að sambandinu og sagði dóttur sinni,
að sofandi systirin mundi ekki muna þennan fund, er hún
vaknaði, öðruvísi en sem óljósan draum. Það reyndist svo.
Hér er öðru til að dreifa en á fundinum með frú
Blanche Cooper, því að hér er jarðneska konan, sem að
miðilssambandinu kemur, sofandi heima hjá sér. En séi’-
lega er athyglisvert það, sem frænka hennar segir í frá-
sögn sinni, að hún hafi munað eitthvað frá þessum miðils-
fundi sem óljósan draum, er hún vaknaði. En enga hug-
mynd hafði hún um, að halda ætti þennan fund, svo að
ekki verður talað hér um hugarburð hennar einan að verki.
Dæmi eru þess, og munu ekki fá, að með einbeitingu
hugans hafi mönnum tekizt að gera vart við sig á miðils-
fundi í fjarlægð. Einkum lítur út fyrir, að fólki, sem sál-
rænum gáfum er gætt, geti tekizt þetta. Frá slíku dæmi