Morgunn - 01.06.1957, Side 50
Vinafundir
★
Maður að nafni Percy Cole á heima í Melbourne 1 Ástra-
líu, og segir frá eftirfarandi atviki úr sálrænni reynslu
sinni, sem bæði felur í sér reynslu af vitaðri tilvist utan
jarðnesks líkama, og viðleitni ójarðneskra manna til þess
að verða jarðneskum mönnum að liði. Áður átti maður þessi
heima í Englandi. Fyrir nokkrum árum var nauðsynlegt
fyrir hann að láta draga úr sér allmargar tennur, en hann
hafði lítinn tíma aflögu frá störfum sínum og ákvað því
að láta svæfa sig og fá þessu lokið í einu.
Meðan hann var að hugsa um hvenær hentugast myndi
að fá þetta gert, dreymdi hann næsta einkennilegan draum.
1 draumi þessum greindi hann konu, sem virtist búin sér-
kennilegum nunnubúningi. Með henni sá hann lækni, sem
bar einkennisbúning herlækna.
Cole, sem er lyfjafræðingur að atvinnu, segir að sig
hafi oft dreymt þessa konu áður. Hann segir svo frá
draumi sínum:
„Mig dreymdi að þessu sinni, að hún rétti mér brún-
leitt pappírsblað, ég hugði í fyrstu að þetta væri lyfseðill.
En hann var þó næsta ólíkur þeim, því að á hann var að-
eins skrifað eitt orð „WAWN“. Ég skildi ekki hvað gæti
verið átt við með þessu, og beindi máli mínu til læknis-
ins, er stóð við hlið konunnar".
„Hvað merkir þetta?“ spurði ég lækninn.
„Að þú ert með hjartasjúkdóm, lokugalla“.
„En af hverju er þetta skrifað „WAWN“? spurði ég.
Hann svaraði þessu ekki, en ég þóttist fletta upp í
lyfjafræðiorðabók minni til að athuga hvað orð þetta kynni
að merkja. En að lokum datt mér í hug, er ég hugsaði um