Morgunn


Morgunn - 01.06.1957, Page 52

Morgunn - 01.06.1957, Page 52
46 MORGUNN við mig-. Dr. Johnson er nú starfandi við háskólann í Mel- bourne. Þeir höfðu komið ether-flöskunni og áhöldum sín- um fyrir á borði örlítið bak við mig og til hliðar, en þannig að ég sá þau ekki í stellingum þeim, er ég var í. Þegar ég hafði andað ether-gufunni að mér um stund, fann ég að ég var farinn að brjótast um, en ég vildi halda mér rólegum og von bráðar missti ég meðvitund með öllu. Þegar ég kom til sjálfs mín stóð ég úti í horni á lækn- ingastofunni, rétt hjá dyrunum. Hjá mér -stóðu karl og kona og þekkti ég þau bæði þegar, stúlkan í nunnubún- ingnum var hin sama og ég hafði séð í draumi mínum, en með henni var læknirinn, sem ég hafði þá einnig séð, munurinn var aðeins sá, að nú var mig ekki að dreyma. Ég litaðist um í herberginu. Veggir þess voru orðnir gagnsæir, ég sá í gegnum þá og eins lokuðu dyrnar. Ég sá vitundarvana líkama minn liggja á skurðarborðinu, færði mig nú nær því og horfði á aðgerðina. Hvorugur læknanna vissi hið minnsta um, hvernig högum mínum var háttað. Draumkona mín kom nú til mín og sagði: Þú hefðir aldrei átt að láta svæfa þig svona mikið. Þú ert með „mitral regurgitation“, lokugalla, við vöruðum þig við þessu. Já, ég skil þetta nú, sagði ég, en Dr. Bender kvað ekkert vera að hjartanu í mér. Já, okkur er vel kunnugt um þetta svaraði hún. Við sendum þig til hans, af því að hann er gæddur sérstaklega mikilli lífsorku, og með því að nota okkur hana hefur reynzt mögulegt að halda þér lifandi. Hjartagalli þinn er dulinn. Við höfðum vonað að hann myndi finna hann, en jafnvel þó að þú hefðir farið til sérfræðings, er vafasamt að hann hefði fundið hann, nema því aðeins að hann hefði grunað þetta og beinlínis gert sér far um að leita að honum. Jæja, þú ert nú stadd- ur hjá okkur, handan við landamæri jarðlífsins, mynduð þið segja, og við erum engan veginn viss um að þér reyn- izt unnt að hverfa til baka, en ef þig langar í raun og veru til þess, getur þú beðið hérna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.