Morgunn


Morgunn - 01.06.1957, Page 62

Morgunn - 01.06.1957, Page 62
56 MORGUNN finna samhengið milli hinnar kristilegu hjálpræðiskenn- ingar og hins forna trúararfs, sem fyrir hendi var í þess- um löndum, er þeir komu þangað með kristniboð sitt. Á 19. öldinni var það sjálfur John Henry Newman, síð- ar kardínáli, sem hélt fram víðsýnni afstöðu kirkjunnar til sannleikans í öðrum trúarbrögðum, og dæmi hans fylgdu tveir merkisberar frjálslyndu stefnunnar innan rómversku kirkjunnar um aldamótin síðustu. Með fögnuði kváðust þeir sjá hinn sannkaþólska anda einmitt í því að viður- kenna og virða ljós guðlegrar opinberunar í ekki-kristn- um trúarbrögðum. Þessir menn voru þeir George Tyrrell og hinn víðkunni kaþólski rithöfundur, barón Friedrich v. Hiigel. Ýmsir rómversk-kaþólskir rithöfundar og guð- fræðingar hafa síðan haldið sömu hugmyndum fram. Þessi sannkaþólski skilningur á andlegum heimi utan kristindómsins, kaþólski í hinni upprunalegu merking: sem nær yfir allt, spennir yfir allt, hefir raunar þrásinnis orðið að víkja fyrir þeirri þröngsýnu hugmynd, að í heiðna heiminum sé um eintómt myrkur að ræða, villu og synd. Jafnvel hinir glæsilegustu meðal kirkjufeðranna gömlu, eins og þeir Justín, Ágústínus og Tómas Aquinas, sem áð- ur voru nefndir, létu einnig eftir sig mjög niðrandi um- mæli um heiðingdóminn. Hið ómótmælanlega samræmi, sem víða er milli heiðinna og kristinna trúarhugmynda og kenninga hafa menn reynt að draga fjöður yfir með því að skýra það ýmist sem ritstuld heiðinna manna eða stæl- ingar af hendi illra anda. Því hefir eindregið verið haldið fram, að heiðingjar væru útilokaðir frá eilífri sælu. Jafn- vel sjálfur Dante, sem þiggur leiðsögn af heiðnu skáldi um helvíti og hreinsunareldinn, í sínu heimsfræga riti Divina Comedia, skipar göfugum heiðingjum eins og Ari- stótelesi til sætis í einum af forsölum Vítis. Hinn víð- skyggni kaþólski trúboði meðal múhameðsmanna, Rai- mundus Lullus, var sannfærður um, að allir áhangendur íslams — múhameðstrúar — væru dæmdir til eilífra vítis- kvala. Kirkjuþingið í Florenz lýsti yfir því, að Gyðingar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.