Morgunn


Morgunn - 01.06.1957, Side 67

Morgunn - 01.06.1957, Side 67
MORGUNN 61 andi trúarbragða, en þrá sín leitaði lands, þar sem hvorki væru Gyðingar né kristnir menn. Þrjá menn 'hins ekki-kristna heims töldu fræðimenn upplýsingartímabilsins í sérstökum mæli kyndilbera guð- legs sannleika. í fyrsta dagi Sókrates, sem hinir fornu kirkjufeður höfðu ævalöngu fyrr litið á sem „typus Christi". í öðru lagi kínverska spekinginn Konfutse, sem jesúítatrúboðar þar eystra höfðu vegsamað háum tónum og þeir Leibnitz, Voltaire og Wolff höfðu ekki talið sig eiga nógu sterk orð til að lofa. Og í þriðja lagi Múhameð, sem skynsemistrúarmenn 19. aldarinnar töldu hafa flutt heiminum aftur hina náttúrlegu trú, og kenningu hans hina skynsamlegustu við hlið kristindómsins. Þótt guðfræðingar 19. aldarinnar, þeir Herder og Schleiermacher afneituðu ýmsum kenningum skynsemis- trúarmanna, voru þeir þeim sammála um, að eining væri auðsæ aðbaki allra trúarbragða, auðsæ eining að baki fjöl- breytninnar. Fáar tilvitnanir nægja: „Hvarvetna ilma hin heilögu, skínandi blóm“. „Á öllum öldum, með öllum þjóð- um lifir 'hin raunverulega trú“. „Sú krafa að vilja vera ein allsráðandi meðal mannkynsins, ber vott um ríka hneigð til harðstjórnar, sem sannur kristindómur hlýtur að hafa andstyggð á“. „Eins og ekkert er trúnni ósamboðnara en það, að ætla sér að móta alla menn í einni mynd, svo er ekkert ókristilegra en það, að ætla öllum mönnum sömu trúarskoðanir“. Heimspeki 19. aldarinnar sá betur en áður hafði verið séð hið sögulega samhengi í menningunni, og hún sá þá einnig samhengið í heiðnum dómi og kristinni trú í nýju ljósi. Schelling sagði að heiðingdómurinn væri villtur gróð- ur hinnar náttúrlegu trúar, kristindómurinn yfirnáttúr- leg, andleg trú. Kristur 'hafi þegar verið starfandi í heiðnu trúarbrögðunum. Hann, sem síðar gerðist maður, hafi áður flutt heiðingjunum ljós. Miklu hlutlægari er kenning Hegels um þróun trúar- bragðanna. Hann hélt fram þriggja stiga þróun frá nátt-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.