Morgunn


Morgunn - 01.06.1957, Side 77

Morgunn - 01.06.1957, Side 77
MORGUNN 71 „Ég er syndug og veik og má í engu treysta sjálfri mér. Alla von mína set ég á Búddha-Amida. Vegna þjáninga mannanna og synda íklæddist Amida-Búddha holdi og kom til jarðarinnar til þess að frelsa þá. Við kærleiks- þjáningar hans er von mín og von alheimsins bundin. Hann gekk undir mannleg kjör til þess að leysa mennina og engin hjálp er í öðrum en honum. Hann vakir eilíf- lega yfir öllum, sem trúa á hann, og hjálpar þeim. Mér liggur ekki á að deyja, og þó er ég reiðubúin, hvenær sem kallið kemur, og ég hugga mig við það, að fyrir náðar- hjálp Amida Búddha veitist mér að ganga inn í hið kom- anda líf“. Setjið nafn Krists í stað nafns Búddha, og engum mun koma til hugar að þetta sé ekki-kristileg játning. Eins er um þessa bæn Devandranath Tagores, föður skáldspek- ingsins mikla. Hún er þrungin anda hreinnar biblíulegr- ar og evangelískrar guðrækni: „Ó, hæsti herra, vér kom- um til þín, ekki hróðugir af eigin mætti vorum, heldur með auðmjúku og lítillátu hjarta, því að þú munt gefa oss mátt og hefja oss upp. Ekki nálgumst vér þig sem heil- agir menn, heldur sem syndarar, svo að þú megir frelsa oss frá illu, bjarga oss frá breiskleika og fávizku. Flekk- aðir óhreinleika komum vér til þín, svo að þú megir afmá brot vor og fylla 'hjarta vort anda heilagleika og rétt- lætis. Ef þú hjálpar ekki, erum vér einskis megnugir. Þess vegna biðjum vér um daglega hjálp þína. Þú, sem ávallt er fullur miskunnsemi, vernda oss og gef, að ekkert megni að skilja oss frá þér“. Þessar hliðstæður í heiðnum trúarbrögðum við kristin- dóm geta þeir menn hvorki skilið né skýrt, er líta á krist- indóminn sem einangi-að fyrirbæri, óskyldan öðrum trú- arbrögðum og af annarri rót en þau, og þessar hliðstæð- ur verða stöðugt á vegi þess manns, sem leggur stund á trúarbragðafræði, ekki aðeins í hinum háþroskuðu trúar- brögðum Asíu, heldur einnig í mörgum ævafornum og frumstæðum trúarbrögðum. Charles Depuis, sem skyggnd- L
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.