Morgunn - 01.06.1957, Page 81
MORGUNN
75
vill hafa hann? E. t. v. ég einn, þótt þið haldið mig heið-
ingja“. Á 13. öld sagði fursti Mongólanna, Möngke: „Yður
hefir Guð gefið heilaga Ritningu, en þér breytið ekki eft-
ir henni“. „Betri ljóð verðið þér að syngja mér — segir
Nietsche — ef ég á að læra að trúa á endurlausnara yðar,
til þess þyrfti ég að fá að sjá, að lærisveinar hans væru
sjálfir endurleystir". Kristnir menn hafa gengið lengra í
ófyrirgefanlegum glæpum en í nokkrum hinna æðri trú-
arbragða þekkist. Það voru hvorki þeir Hitler né Himml-
er, sem fundu upp svívirðilegustu Gyðingaofsóknixnar,
heldur kristnir menn á miðöldum. Göbbels varð ekki fyrst-
ur til þess að lýsa velþóknun yfir því athæfi að eyða með
eldi guðsþjónustuhúsum Gyðinga, heldur sjálfur Ambrós-
íus kirkjufaðir. Hvorki konfúsíusarsinnar, búddhatrúar-
menn né hinir ofsafengnu áhangendur Múhameðs hafa
svipt likt því eins marga menn lífi og kristnir menn hafa
gjört. Menn létu sér ekki nægja að draga trúvilling-
ana svonefndu á bálið, þeir píndu þá fyrst með ótrúleg-
ustu aðferðum. Hinir rómversk-kaþólsku valdhafar á
Spáni gerðu þessar svívirðilegu aðfarir að opinberum leik-
sýningum. I bók sinni, Buch der Ketzer, kallar Walter
Nigg kaþólsku trúvillingadómstólana með fullum rétti
„hinn algera sólmyrkva kristninnar", og hann sýnir fi-am
á, að tala hinna dauðadæmdu hefir verið miklu hærri en
fram að þessu hefir verið álitið.
Salvían sagði, og það er rétt: „Þegar trúin er góð, þá
er það ekki okkur að þakka. En þegar við lifum illa, er
það okkar sök. Það hjálpar okkur ekki að eiga góða trú,
ef breytni okkar er ill. Hin góða trú er gjöf Krists til
okkar. Hið illa líf er okkar eigin sök“. Andspæixis öllum
afsökunum fyrir breytni kristinna manna stendur sú stað-
í’eynd óhagganleg, að breytni þeirra hefir í eitt skipti fyr-
ir öll gei’t út af við þá kenningu, að kristindómurinn sé
hin eina hjálpi’æðistrú, hin eina opinberun Guðs til mann-
hynsins.
Þannig hrúgast hærra og hærra mótbárui-nar gegn því