19. júní


19. júní - 19.06.1982, Side 23

19. júní - 19.06.1982, Side 23
leikskólaplássi, en flyzt svo skyndi- lega yf ir einn læk, og þarf þá að byrja á nýjum biðlista. Þetta getur gert mörgum erfitt fyrir. Börnin út á vinnumarkað Sp. — En slitróttur skóladagur barna. Gerir hann ekki mörgum erfitt fyrir líka? Auðun: — Það vandamál þekkjum við ekki, því að dóttir okkar hefur samfelldan skóladag. Við höfum sveigjanlegan vinnutíma, þannig að bún þarf ekki að vera ein Iengur en 2—3 tíma á dag. Þjóðbjörg: — Samfelldur skóladag- ur er mjög fjarri öllum veruleik þar sem ég bý. Það þarf að keyra börnin 10 km. í rútu til að fara í leikfimi og bá 7 ára aldri eru þau send ein í strætó til að fara í sund. Þetta skapar mikla erfiðleika fyrir heimilið. Svona ung börn hafa lítið tímaskyn. Þau missa af rútunni og fara kannski í vitlausan strætó og lenda í ókunnu borgarhverfi. Svona býr nú sainfé- lagið að fólki. Jóhanna: — Það væri mjög æski- legt, að skóladagurinn væri samfelld- ur og börnin gætu verið búin að læra þegar þau kæmu heim. Auðun: — Það er ég ekki svo viss urn. Foreldrar ættu að hafa aðstöðu hl að fylgjast með námi barnanna. Á sama hátt þyrftu börnin að hafa aðstöðu til þess að fylgjast með störf- um foreldranna, þannig að bver og einn sé ekki í lokuðum heimi út af lyrir sig. Þetta myndi styrkja sarnheldni og samkennd innan fjöl- skyldu. Sólveig: — Dætrum mínum finnst a.m.k. gaman að vera nteð mér í vinnunni, en ég er svo heppin að hafa aðstöðu til þess að taka þær stundum með. Sutn hörn hafa hins vegar enga hugmynd um, hvernig vinnustaður lureldranna lítur út. Auðun: — Ég tel ntjög æskilegt að auka tengsl barna við atvinnulífið. 10—15 ára gömul ættu þau að kom- ast sem mest út á vinnuntarkaðinn og starfa með náminu. Þjóðbjörg: — Nú vill hann fara að set]a börnin í verksmiðjur! Auðun: Ég á við, að smám saman l'urfi að aðlaga börnin atvinnulífinu. bað er asnalegt að hafa þau í skóla í 10—20 ár og svo eiga þau allt í einu Auðun: - Börn eiga að fara út á vinnu- markaðinn 10 ára gömul. að fara að vinna. Þau kunna ekkert að vinna. Þau vita ekkert um atvinnulífið. Þau geta þess vegna lent óvart í störfum, sem þau hafa engan áhuga á. Sp. — En nú hafa kontið fram vangaveltur um, að heimilið verði í framtíðinni hlekkur í athafnalífi, og hafa menn m.a. hent á möguleika, sem aukin tölvuvæðing skapar í því sambandi. Auðun: — Ég vil alls ekki fá vinnuna inn á heimilið. Allra sízt tölvu. Ég fæ nóg af henni á mínum vinnustað. Jóhanna: — Þetta gæti leyst ýmsan vanda, en Iíka orðið til þess að fólk einangraðist um of heima hjá sér. Sólveig: — Ég held, að mér lítist ekkert á þetta. Ilins vegar held ég að vinnuveitendur, sem eru í flestum til- vikum karlmenn, gætu sýnt meiri lip- urð og sveigjanleika gagnvart starfs- fólki, sein á ung börn. Til dæmis eru veikindi barna ekki lögleg fjarvist fyrir foreldra. Slík fjarvist er sums staðar dregin frá sumarleyfi. Svo reyna sumir atvinnurekendur að senda konur heim ineð vinnu, ef þær þurfa að vera heima hjá veikum börnum. Þetta finnst mér óréttlátt. Það er líka erfitt að einbeita sér að vinnu með veikt barn yfir sér. Auðun: — Foreldrar eiga að geta verið heima, ef börnin eru veik. Þannig er það líka víða, þar sem ég þekki til. Þjóðbjörg: — En ekki fá húsmæður frí frá öðrum störfum sínum til að sinna veiku barni. Segjmn svo, að eitt barn í systkinahópi sé veikt og móð- irin þurfi að vaka yfir því heila nótt. Hún getur verið bundin af hinum börnunum eftir sent áður næsta dag, þótt veika barnið blundi þá stund og stund. Ilún getur vakað í inargar nætur og enga hvíld fengið. Þetta er að vísu ekki svona heima hjá mér. Við hjónin höfum skipt vökunóttum á rnilli okkar. En það er bara ekki alls staðar gert. Sp. — En hvernig verður heimili framtíðarinnar. Verður það byggt upp af kjarnafjölskyldu eða verður breyting á sambýlisháttum, t.d. þannig að margar fjölskyldur búi saman? Jóhanna: — Ég vona að minnsta kosti að heimilin verði áfram í þessu hefðbundna fornti og hvíldarstaður og sameiningartákn fyrir fjöl- skylduna. Auðun: — Mér lízt ekki á kommúnubúskap neina þá við alveg sérstakar aðstæður. Þetta sambýlis- form getur haft í för með sér til- finningalega togstreitu hjá börnum og tortryggni milli samhúðaraðila. Ég vil hafa kjarnafjölskyldu, vil að hjón- in vinni bæði úti og skipti ineð sér heimilisverkum. Svo vil ég hafa vinnutímann sveigjanlegan og stytta hann, þannig að fjölskyldufólki gefist betri tími til að vera saman og hver einstaklingur geti fengið að raikla sín áhugamál í friði. Sólveig: — Sambýli margra fjöl- skyldna getur ugglaust haft ýmsa kosti, t.d. inyndi vinnuálagið heima fyrir dreifast á fleiri hendur. Samt vil ég vera út af fyrir mig með börnin rnín. Ég held að hefðbundin kjarna- fjölskylda sé bezti kosturinn fyrir flesta, en fólk þyrfti að geta dregið úr vinnunni og verið meira saman. Þjóðbjörg: — Ég vil hafa kjarnafjöl- skylduna áfram, en mér finnst þýð- ingarntikið, að hún leggi rækt við aldraða og einstaklinga, sem búa við einsemd og eru komnir á stofnanir, en þótt þær séu góðar og nauðsyn- legar Ieysa þær þó okkur ekki undan skyldum við okkar fólk. Þær þjóðfé- lagslegu breytingar sem orðið hafa á undanförnum árum hafa að vissu leyti komið illa niður á börnum, og foreldrarnir þurfa að leysa þau Framhald á bls. 66. 23

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.