19. júní - 19.06.1982, Page 30
mun betur tryggð en hinna, sem
bjuggu við kjör liins alinenna vinnu-
markaðar. Þessu olli vitanlega sér-
staða ríkis og bœja sem atvinnu-
rekenda.
Mjög lljótlega komu frain bug-
myndir um að tryggja þyrfti öðrum
konum á vinnumarkaðinum sams
konar rétt. Þessar hugmyndir
strönduðu jafnan á Jiví, live mjiig Jiað
vafðist fyrir mönnum að finna færa
fjármögnunarleið.
Á Alþingi 1975 fékkst meiri liluti
fyrir því að fela Atvinnuleysis-
tryggingasjóði þetta verkefni, en
hann er fjármagnaður með Jieim
hætti, sem næst komst Jiví að vera
rökrétt í þessu sambandi. Var Jietta
gert með lögum nr. 56/1975. Höfðu
nokkrum sinnum áður verið lögfest
fyrir sjóðinn ný verkefni, sýnu fjar-
lægari aðaltilgangi sjóðsins en Jietta
var. Atvinnurekendur höfðu þó greitt
í sjóðinn hlutfall af launum allra
Jieirra starfskvenna, er Jiarna áttu í
hlut. Með þessari lagabreytingu bætt-
ist stór hópur kvenna í Jtann laun-
þegahóp, er naut fæðingarorlofs.
Núgildandi lög
Með lögum 97/1980 voru nú-
gildandi ákvæði um fæðingarorlof
sett og er Jiau að finna í 16. grein laga
um almannatryggingar nr. 67/1971.
Með breytingunni var ákveðið, að
skyldunni til greiðslu fæðingarorlofs
væri létt af atvinnuleysistrygginga-
sjóði og hún lögð á lífeyrisdeild
Tryggingastofnunar ríkisins. Greiðsl-
urnar ná nú rniklu víðar, en ekki er
samt einsýnt, að breytingin sé til
bóta.
í lagagreininni frá 1980 er merk-
ing orðsins fæðingarorlof teygð út
fyrir eðlileg takmörk sín skv. skiln-
ingnum hér að framan og látin ná til
greiðslna vegna barnsfaiðingar, hvort
sem móðirin verður fyrir tekjumissi
eða ekki. Flestir verða að sjálfsögðu
fyrir einhverjum aukakostnaði í sam-
bandi við bamsfæðingu, en auka-
kostnaður er annað en tekjumissir.
Svo er að sjá sem menn hafi ekki
hugsað til fulls muninn á því tvennu,
er lagagreinin var sett.
Sá hluti greiðslna, er fer til þeirra,
sem ekki verða fyrir tekjumissi við
fæðinguna, er fæðingarstyrkur í
30
venjulegum skilningi tryggingalaga
og ætti að skoðasl í Jiví ljósi.
Verða Jiær greiðslur að teljast e. k.
fjölskyldubætur, sem greiddar eru í
Jirjá mánuði. Fjölskyldubætur voru á
sínum tíma numdar úr almanna-
tryggingakerfinu og felldar inn í
skattakerfið í þeim tilgangi, að þær
yrðu aðeins borgaðar út til þeirra,
sem tekjulágir eru.
Skortir mig sannfæringu fyrir Jiví,
að greiða eigi slíkan fæðingarstyrk,
sem hér um ræðir til heilbrigðra
bjargáltia foreldra, setn samvistum
eru. Fé almannatiy'gginga væri trú-
lega betur varið í Jiágu aldraðra,
öryrkja, sjúkra eða barna, sem misst
hafa foreldri sitt. Vilji menn láta
greiða slíkan styrk, væri það eðli-
legast á grundvelli frjálsra trygginga.
Mæður, sem ekki eru launþegar, en
verða samt fyrir tekjumissi í barns-
burðarleyfi, m. ö. o. starfa við eigin
atvinnurekstur, þurfa að eiga satna
rétt til fæðingarorlofs og launþegar.
Ætti að vera unnt að leysa það mál á
svipuðum grundvelli og aðrar tiygg-
ingar atvinnurekenda, |>. á. m.
bænda. Réttast væri að þessi trygging
væri einnig frjáls.
Fæöingarorlof feöra
Ákvæðið frá 1980 um heitnild
feðra til fæðingarorlofs felur ekki í
sér réttarbót fyrir mæður; Jiví að
notkun heimildarinnar skerðir orlofs-
rétt konunnar um allt að heilum
inánuði og allt að tveimur mánuðum,
ef einnig er notuð heiinildin til fram-
lengingar orlofsins liinn fjórða mán-
uð. Framlengingarheimildin í 10.
málsgrein lagagreinarinnar vegna
sjúkleika barns eða lleirburafæðingai'
er að öðru leyti mjög til bóta.
Fæðingarorlof föður í þeim tilgangi
að sinna inóður fyrst eftir heimkomu
af fæðingarstofnun er í alla staði
mjög æskilegt og ætti að vera sjálf-
sagðtir réttur föður, móður og barns.
Slíkt orlof er bins vegar annars eðlis
en heimildirnar í umræddri lagagrein
|iar sem farðirinn fær orlofsréttinn,
einungis gegn Jtví að moðirin afsali
sér honum.
í grein |iessari hefur verið sliklað á
stóru í vandasömu máli. Ég tel mikil-
vægt, að menn missi ekki sjónar á
rökunum fyrir fæðingarorlofi, sein
veitt er í þeim tilgangi að móðirin geti
í Jrrjá mánuði hið minnsta, án þess að
stofna atvinnuöryggi sínu í liættu og
án tekjumissis, átt Jress kost sem
heimavinnandi húsmóðir væri að
sinna nýfæddu barni sínu og heimili.
Rökin fyrir þessu eru helzt:
1) heilsufarsleg
2) félagsleg
3) jafnréttisleg
Séu þessi rök höfð að leiðarljósi við
lagasetningu, hygg ég, að eftirtekjan
verði betri líðan fjölskyldna eftir til-
komu nýs borgara, hollusta og örygg-
iskennd í lífi ungbarnsins á fyrstu
ævidögum, rneira öryggi kvenna á
vinnumarkaði svo og vinnuveitenda
Jieirra og Jiar með betri aðstaða
kvenna til fulls jafnréttis í latnium og
störfum.
Ragnhildur Helgadóttir.
Það er lán
að skipta við
SPARISJÓÐINN
5PARISJDÐUR
HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 8-10
5PARI5JÚÐUR
HAFNARFJARÐAR
NORDURBÆR REVKJAVÍKURVEGI66