19. júní


19. júní - 19.06.1982, Side 50

19. júní - 19.06.1982, Side 50
Var ósjaldan með bláan kjálka eða glóðarauga Rætt við eina þeirra kvenna sem hefur orðið fyrir barsniíðum á heimili sínu „Ég vil endilega hvetja konur, sem búa við ofbeldi á heimilum sínum, til þess að hætta feluleiknum og Ieita að- stoðar“, sagði reykvísk kona uin fimm- tugt í samtali við 19. júní. Kona þessi hefur langa persónulega reynslu af þessu vandamáli og vildi af eðlilegum ástæðuin halda nafni sínu leyndu. Ilún er tvígift og tvískilin, fjögurra barna móðir. Ástæðan fyrir fyrri skilnaðinum var önnur kona, en meg- inástæðan fyrir seinni skilnaðinum voru barsmíðar eiginmannsins. „Þetta byrjaði svo sein nógu sak- leysislega“, sagði hún. „Fljótlega eftir að sambúð okkar hófst, fór hann að veita mér smáhögg af litlu tilefni. Það sá ekkert á mér á eftir og ég tók þetta ekki alvarlega. En svo smáágerðist þetta, höggin urðu þyngri og tíðari, 50 og síðustu árin var ég ósjaldan með bláan kjálka eða glóðarauga“. Lítil tilefni „Tilefnin voru alltaf lítil og stund- um engin, að því er mér virtist. Sjaldnast var rifrildi orsökin, og aldrei áfengisneysla. Hann barði mig ef maturinn var ekki til á þeim tíma sem hentaði honum. Ilann barði mig ef ég minnti hann á verk, sem eftir var að vinna. Ilann barði inig ef ég yrti á hann þegar hann var upptekinn við eitthvað. Og þannig mætti lengi telja. Höggin sem ég fékk voru yfirleitt hnefahögg á kjálkana, en stundum sló hann inig utan undir hvað eftir annað, eða hrinti mér til“. — Ilvaða skýringar gafstu á mar- hlettunum og glóðaraugunum? „Ég sagðist hafa rekið mig á skáp- hurð, eða eitthvað þess leiðis. Lg sagði engum hvað raunverulega liefði skeð, heldur reyndi ég að fela það eins og ég gat. Ég leitaði heldur aldrei til lögreglunnar né læknis, þótt ég hefði oft þurft á því að halda, sérstak- lega einu sinni, þegar eiginmaðurinn hrinti mér harkalega á borðbrún, þannig að ég fékk stóran skurð á höfuðið“. — lleldurðu að fólk hafi trúað skýringum þínum? „Ég veit það ekki. Ég hugsaði ekk- ert um það þá. Ég var eitthvað svo dofin. En ég býsl þó við því að fólk hafi frekar getað trúað þessum sög- um mínum, en hinu sanna, Jiví liann var svo dagfarsprúður í annarra aug- sýn. Það gat enginn séð Jiað á honum að hann fengi svona ofstopaköst. Enda kom það í ljós þegar ég opnaði mig eftir skilnaðinn, að ekki einu sinni mínir nánustu trúðu þessu og sögðu að ég lilyti |>á að hafa kallað Jietta yfir mig“. — Varstu farin að haga Jiér með lilliti til barsmíðanna í samskiptum Jn'nmn við eiginmanninn? Varstu til dæmis hætt að Jiora að andmæla honum? „Nei, Jtað var ég ekki. Hann sló mig ekkert frekar Jiótt ég andmælti honum. Reyndar var alveg sama hvernig ég kom fram. Ég átti raunverulega alltaf von á þessu. Hins vegar var ég farin undir það síðasta að skvetta í mig áfengi. Það róaði taugarnar eftir barsmíðamar, sér- staklega ef ég drakk sterkt vín óblandað og fékk það þannig „beint í u‘,ð“. Áfengisneyslan náði samt ekki að verða vandamál hjá mér og eftir skilnaðinn hvarf þörfin fyrir áfengið gersainlega“. Gekk fljóít yfir — Þurftirðu einhvern tíma að Ilýja heimilið? „Já, ég flúði nokkrum sinnum að heiman og fór |>á til foreldra minna í nokkra daga með börnin. En |>að var ekki beinlínis vegna [jess að ég væri hrædd um Iíf mitt, því hann barði mig aldrei til óbóta. Og ég vissi alltaf að æðiskastið gengi Iljótt yfir. Ilon-

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.