19. júní - 19.06.1989, Blaðsíða 3
Frá
ritstjóra
Sigrún
Stefánsdóttir
19. júní - ársrit Kvenréttindafélags íslands á sér
langa sögu - en þetta blað sem nú er komið út er þrítug-
asti og níundi árgangur þess. Einhver kann að spyrja
hvort útgáfa rits af þessum toga sé tímaskekkja. Væri
æskilegra að flytja umræðuna um málefni kvenna yfir á
önnur mið fjölmiðla sem eru líklegri til að ná til þeirra
sem við viljum helst fræða og hafa áhrif á? Nær 19. júní til
annarra en þröngs hóps kvenna sem þegar eru virkar í
baráttunni fyrir réttindum kvenna? Mitt svar við þessum
vangaveltum um tilverurétt 19. júní er að blaðið sé
ómissandi vettvangur sem beri að halda dauðahaldi í.
Ársrit Kvenréttindafélagsins gegnir mikilvægu hlutverki
í að skrá þá áfanga sem nást í jafnréttisbaráttunni á
Islandi og skrá sögu félagsins sjálfs, auk þess sem það er
tryggur, árviss vettvangur fyrir þá sem vilja leggja eitt-
hvað af mörkum í rituðu máli jafnrétti til framdráttar.
Það hefur sýnt sig að fjölmiðlar á Islandi hafa tilhneig-
ingu til þess að gefa konum og málefnum þeirra minna
svigrúm en fjöldi íslenskra kvenna gefur tilefni til og
mikilvægi málanna sem þær vilja koma á framfæri. Gild-
ir þetta ekki síst um fréttamiðlana. I nýlegu fréttabréfi
Jafnréttisráðs er á það bent að athuganir á hlut kvenna í
sjónvarpsfréttum hafi sýnt að ekkert hafi miðað í barátt-
unni fyrir auknum hlut þeirra í fréttum síðan 1986 þegar
fyrsta rannsóknin var gerð á þessu sviði og virðist
óhappatalan 13 vera sú hlutfallstala sem konur ætla seint
að komast upp fyrir á þeim vettvangi. Könnun sem
hópur nema úr Fósturskóla íslands gerði fyrir skömmu
sýndi að í umræðuþáttum sjónvarps var hlutur kvenna
jafnvel enn rýrari en í fréttum.
Samhliða baráttunni fyrir auknum hlut kvenna og
aukinni umfjöllun um málefni kvenna í útvarpi, sjón-
varpi, dagblöðum og almennum tímaritum þurfum við
að ríghalda í sérblöð eins og 19. júní þar sem svigrúm er
fyrir málefnalega, þverpólitíska, jákvæða umræðu um
þau mál sem mest brenna á hverju sinni. Þegar konur
verða búnar að ná sömu stöðu og karlar innan fjölmiðla
- sem þær eiga eftir að gera - er hins vegar ef til vill
ástæða til að breyta áherslum og uppbyggingu 19. júní.
En sú umræða getur beðið þar til markinu er náð.
Að þessu sinni er mjög fjölbreytt efni í blaðinu en
mest rúm fær umræða um tæknifrjóvganir. Eins og kom-
ið hefur fram í fréttum er ætlunin að byrja á næsta ári á
slíkum frjóvgunum hérlendis. Tæknifrjóvganir eru lausn
fyrir marga þá sem af einhverjum orsökum hafa ekki
getað eignast barn en spurningarnar sem þessi tækni
vekur eru líka margar og full ástæða til að konur velti
fyrir sér hinum ýmsu hliðum þessa máls. Við köllum
þennan greinaflokk „Hvernig verða börnin til?“. Þessi
yfirskrift var valin til þess að vekja athygli á því að þau
skýru svör sem okkur sem erum komin á fullorðinsár,
voru gefin í æsku um barneignir eru nú ekki nema hálfur
sannleikurinn og varla það.
4 HVERNIG VERÐA BÖRNIN TIL?
7 MEÐFERÐ GEGN ÓFRJÓSEMI ER
MANNÚÐARMÁL
11 MYNDUM EKKI HIKA VIÐ AÐ GERA
ÞETTA AFTUR
12 AÐ VÆNTA EINSKIS EN VONA ÞAÐ BESTA
15 BRÉF TIL JÓNU
18 RÉTTARSTAÐA BARNANNA ÓTRYGG
21 SYSTRAHUGUR
25 MÁ ÉG EKKI VERA KVENKYNS í FRIÐI
TAKK!
27 HVERNIG GENGUR ÞEIM AÐ LIFA
SAMAN?
30 BÆÐI VERÐA AÐ STÍGA SVOLÍTIÐ TIL
HLIÐAR
34 KONUR ERU EINA VON MANNKYNSINS
37 HVAÐ GETA FÁEINAR ÖMMUR GERT?
39 ER LÝÐRÆÐIÐ LÝÐRÆÐISLEGT?
48 Á AÐ GREIÐA LAUN FYRIR AÐ VERA
HEIMA?
52 KONURí ROKKI
60 HAUSTSTEMMNING Á DÖNSKUM AKRI
62 ÁFRAM STELPUR
66 ÞÆR FYLGJAST AÐ INN í
HEIÐURSLAUNAFLOKKINN
70 UM BÆKUR
73 ÁHRIF KVENFRELSISBARÁTTU OG
KJARABARÁTTA í VESTMANNAEYJUM
75 ÞVERT Á STÉTTIR OG FLOKKAi /,
80 HVAÐ ER AÐ GERAST HJÁ
J AFNRÉTTISRÁÐI?
i: ;
19. júní 1989 - 39. árg. — Útgefandi: Kvenréttindafélag ís-
lands, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykjavík, Sfrni: 18156
— Að blaðinu unnu: Sigrún Stefánsdóttir, Jönína Margrét
Guðnadóttir, Magdalena Schrani, Jóna Möller, Erla Björg
Sigurðardóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Sofffa Guðmunds-
dóttir, og Guðrún Stella Gissurardóttir — Ritstjóri og
ábyrgðannaður: Sigrún Stefánsdóttir — Ljósmyndir: Rut
Hallgrímsdóttir — Ljósmynd á forsíðu: Rut Hallgrímsdóttir
— Utlit: Kicki Borhammar —■ Auglýsingar: Júlíana Signý
Gunnarsdóttir — Setning, prcntun og bókband: Prentstofa
G. Bcncdiktssonar hf. —
3