19. júní - 19.06.1989, Blaðsíða 48
Umrœðuna um hvort greiða eigi heimavinnandi
fólki laun á einhvern hátt frá ríki og/eða
sveitarfélögum hefur borið á góma nokkuð oft upp á
síðkastið. Hagsmunanefnd heimavinnandi húsmæðra
sem vinnur innan Bandalags kvenna í Reykjavík hefur
barist fyrir þessu innan sinna vébanda og reynt að
vekja athygli á þessari hugmynd í nokkur ár. Davíð
Oddsson, borgarstjóri, rœddi þetta mál í borgarráði
fyrir líklega tveimur árum og kvaðst hlynntur þeirri
hugmynd að Reykjavíkurborg greiddi heimavinnandi
fólki laun sem mótvœgi gagnvart þeim háu
upphœðum, sem borgin greiddi til dagheimila og
leikskóla. Hann rœddi þetta einnig á ráðstefnu
Hagsmunanefndarinnar í janúar sl.
AAÐGREIÐA
LAUN FYRIR
AÐ VERA HEIMA?
Á þessu ári mun Reykjavíkurborg
greiða 600 milljónir króna til dagvist-
unarmála. Skiptist sú upphæð á
dagvistunarstofnanir og leikskóla.
Kostnaður við eitt barn á dagheimili í
eitt ár er kr. 330.000-, og þar af
greiða foreldrar barnsins kr. 59.400.
Borgin greiðir sem sé kr. 22.500-, á
mánuði með hverju barni sem er all-
an daginn á dagheimili.
Kostnaður við barn á leikskóla í
eitt ár er kr. 91.500-., Af því greiða
foreldrar kr. 40.650-, eða tæplega
helming. Borgarsjóður greiðir einnig
niður vistun barna einstæðra for-
eldra hjá dagmæðrum, en gjald fyrir
eitt barn þar er kr. 18.413-, á mánuði.
48
Þar af greiðir borgarsjóður kr.
13.000-, fyrir einstæða foreldra.
Reykjavíkurborg greiðir á ári kr.
220.956-, til dagmæðra en foreldrar
greiða kr. 156.000-..
Þessar tölur sem hér eru gefnar
upp eru einungis yfir kostnað við
rekstur dagheimila og leikskóla,
kostnaður við uppbyggingu þeirra er
ekki þarna með en hann skiptir mill-
jörðum króna.
Hér á eftir segja þær Helga Guð-
mundsdóttir og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir skoðanir sínar á þeirri
hugmynd að greiða heimavinnandi
fólki laun fyrir að vera heima með
börn sín.