19. júní - 19.06.1989, Blaðsíða 39
Sú gerjun, sem verið hefur að krauma í
stjórnmálalífinu undanfarin ár, varð ritnefnd 19. júní
umhugsunarefni og þótti kjörið tilefni
hringborðsumrœðu í blaðinu. I þeim tilgangi var hóað
saman hópi fólks ogfer árangurinn hér á eftir.
Daglangri samrœðu verður auðvitað aldrei allri
komið á blað í heilu lagi. Pess vegna skulum við
ímynda okkur að við stöndum á hleri og hlustum eftir
því sem hœst ber í umræðunni. Það eru þau Jón
Björnsson félagsmálastjóri á Akureyri, María
Jóhanna Lárusdóttir kennari, Ólafur Hannibalsson
blaðamaður, Soffía Guðmundsdóttir kennari og
Pórunn Gestsdóttir ritstjóri, sem talast við. Magdalena
Schram hefur hönd í bagga og er fundarritari.
Ms: Þegar ritnefnd 19. júní var að
ræða stjórnmálaástandið, kallaðir þú
Soffía, stjórnmálaflokkana „form-
lega undirstöðu lýðræðisins“. Og við
veltum því fyrir okkur hvort þeir
hornsteinar væru að gefa sig núna.
Soffía: Það sem ég á við með því að
nefna flokkana hornsteina lýðræðis-
ins er einfaldlega, að þeir fara með
valdið eftir styrkleikahlutföllum og í
starfi sínu styðjast þeir við ákveðna
formlega skipan.
MAGDALENA
SCHRAM
Mér finnst núna, hefur reyndar
sýnst svo um nokkurt skeið, að ýmis
teikn séu á lofti um að þeirra áhrifa-
vald fari þverrandi. Þeir virðast ekki
hafa það yfirbragð, að það beinlínis
laði fólk að sér, sem berlega sést t.d.
á því að fólk fer æði oft fram hjá
flokkum með eitt og annað sem það
vill berjast fyrir. Stjórnmálaflokkar
eru tæki til að reka þjóðfélagið og
þeir móta stefnu og stjórn í mikilvæg-
um málum. Og við skulum ekki
gleyma því, að stjórnmál snúast um
það hvernig lífi við viljum lifa. Mér
finnst við geta spurt núna hvað það
sé í þeirra starfsháttum sem hindrar
það, að fólki þyki þeir vænlegur kost-
ur sem tæki til að beita fyrir sín bar-
áttumál. Það er visst upplausnar-
ástand sem þetta leiðir af sér.
3
5
C
!
■3'
ER LYÐRÆÐIÐ
LÝÐRÆÐISLEGT?
39