19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1989, Qupperneq 79

19. júní - 19.06.1989, Qupperneq 79
Páls V. Daníelssonar. Þingið sam- þykkti tillögur, sem beint var til stjórnvalda, sem allar lúta að því að draga úr áfengisbölinu. KRFÍ er aðili að Friðarhreyfingu kvenna. Fulltrúar félagsins eru Júlí- ana Signý Gunnarsdóttir og Jónína Margrét Guðnadóttir. Störf hreyf- ingarinnar miðuðust framan af ári við þátttöku í Nordisk Forum. I nóv- ember var haldinn fundur með Pam- elu Alillie og Steinunni Einarsdóttur um „Alþjóðlegt samstarf um betri heim“. í framhaldi af þeim fundi hélt Steinunn námskeið með friðarkon- um. Starfsemin nú er einkum tengd undirbúningi að komu Helen Caldi- cott hingað til lands í júní n.k. KRFI á fulltrúa í áhugahópi um varðveislu og framgang Kvenna- sögusafns íslands, og er fulltrúi fé- lagsins þar Guðrún Gísladóttir. Hópurinn hefur starfað í á annað ár, haldið 8 fundi og talað við ráðherra og yfirmenn Háskóla og Landsbóka- safns. Takmarkið er að koma safninu inn sem deild í Þjóðarbókhlöðu, þegar hún tekur til starfa. I Áfengisvarnarnefnd kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði eiga sæti þær Júlíana Signý Gunnarsdóttir og Þóra Brynjólfsdóttir. Störf nefndar- innar á árinu voru með líku sniði og undanfarin ár. Börn nutu sumardval- ar í sveit á vegum nefndarinnar og jólagjafir voru gefnar í fangageymslu lögreglunnar við Hverfisgötu og gistiskýli borgarinnar við Þingholts- stræti. KRFÍ á sæti í Mæðrastyrksnefnd og er fulltrúi félagsins þar Ingibjörg Snæbjörnsdóttir. Starfsemin þar var með hefðbundnu sniði á sl. ári. Ókeypis lögfræðiaðstoð er veitt á vegum nefndarinnar ásamt fatagjöf- um og peningagjöfum. Dvalarheim- ilið Ás í Hveragerði hefur boðið nefndinni dvöl fyrir konur endur- gjaldslaust þeim til hvíldar og hress- ingar í Hveragerði. Erlend samskipti Svo sem að líkum lætur hafa er- lend samskipti síðastliðið starfsár verið nær einungis bundin við Nord- isk Forum. Eins og fram kom í skýrslu for- manns í fyrra, bauð félagið 1AW, al- þjóðasamtökum kvenna, að hér yrði haldið næsta alheimsráðstefna sam- takanna 1989. Boð komu frá fleiri ríkjum, og varð að ráði að næsta þing verður haldið í Ástralíu í ár. Formenn Kvenréttindafélaganna á Norðurlöndum hittust stundum á sl. ári í tengslum við Nordisk Forum, en enginn formlegur stjórnarfundur var haldinn. Útgáfustarf Ársrit félagsins, 19. júní kom út í lok maí sl., og var blaðið að þessu sinni helgað umfjöllun um dagvistar- mál. Ritstjóri blaðsins var Jónína Margrét Guðnadóttir. Nýr ritstjóri hefur nú verið ráðinn að 19. júní, dr. Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðlafræð- ingur. Fréttabréf félagsins kom út nokkr- um sinnum á árinu eftir þörfum. Rit- stjóri fréttabréfs var Ragnheiður Harðardóttir, en hún fékk fleiri stjórnarkonur í lið með sér við um- sjón fréttabréfs. Með tilkomu tölv- unnar á skrifstofu félagsins gerbreyt- ist aðstaðan við að koma út frétta- bréfi. Sigríður Erlendsdóttir sagnfræð- ingur vinnur að samningu sögu Kvenréttindafélagsins, og er því verki ekki lokið. Nýtur Sigríður að- stoðar Valborgar Bentsdóttur við verkið. MENNINGAR OG MINNINGARSJÓÐUR r/KOMI ÞEIRTÍMAR AÐ KONUR OG KARLAR FÁI SÖMU LAUN . . ." Menningar- og minningarsjóð- ur kvenna var stofnaður árið 1941 á afmælisdegi Bríetar Bjarnhéð- insdóttur, þ. 27. september, en það ár hefði Bríet orðið 85 ára. Stofnfé sjóðsins var dánargjöf Bríetar. Eins og nafnið ber með sér er tilgangur sjóðsins sá að vinna að menntunar- og menningarmálum kvenna. í skipulagsskrá hans segir að svo skuli gert með því að styðja konur til framhaldsmenntunar, til rannsókna að loknu námi til rit- starfa eða með því að verðlauna ritgerðir er varða áhugamál kvenna o.fl. Þá segir einnig í skipulagsskrá: „Komi þeir tímar að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu og sömu aðstæð- ur til menntunar, efnalega, laga- lega og samkvæmt almennings- áliti, þá skulu bæði kynin hafa jafnan rétt til styrkveitinga úr þessum sjóði.“ Enn hefur ekki komið fram tillaga um að breyta úthlutunum styrkjanna sam- kvæmt þessu! Tekjur þessa sjóðs eru minning- ar- og dánargjafir. Þá hefur sjóð- urinn einnig staðið fyrir merkja- sölu árlega á afmælisdegi Bríetar. Varðandi minningargjafir til sjóðsins segir í skipulagsskrá: „Sjóðnum skal fylgja sérstök bók og skal, ef óskað er, geyma í henni nöfn, myndir og helstu æviatriði þeirra, sem minnst er.“ Þessar greinar hafa verið prentaðar og gefnar út í sérstökum bókum, sem nú eru orðnar fimm að tölu. í þeim er að finna mikinn fróðleik um líf kvenna og störf. Elsta greinin er um konu, sem fæddist árið 1827, sú yngsta er fædd 1953 og má því af þessum bókum lesa fróðlega kvennasögu. Fyrsta bók- in er löngu uppseld en þær fjórar, sem enn eru fáanlegar má kaupa á skrifstofu KRFÍ á Hallveigarstöð- um. Um 600 konur hafa hlotið styrk úr Minningar- og menningarsjóði kvenna. Full ástæða er til að minna konur og karla á þennan sjóð og minningarkortin, sem gef- in eru út honum og þá um leið konum til styrktar í námi og rann- sóknum. Stjórn sjóðsins er kjörin á landsfundi KRFÍ og núverandi stjórn skipa: Hjördís Þorsteins- dóttir, Júlíana Signý Gunnars- dóttir, Kristín Jónsdóttir, Val- borg Bentsdóttir og Þorbjörg Daníelsdóttir. Til vara: Dóra Ey- vindardóttir, Magdalena Schram, Bára Guðbjartsdóttir, Herdís Hall og Dóra Guðmundsdóttir. Nánari upplýsingar um sjóðinn er að fá á skrifstofu KRFÍ að Hall- veigarstöðum sem er opin virka daga frá kl. 10—12 og síminn þar er 91-18156. 79
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.