19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1989, Qupperneq 10

19. júní - 19.06.1989, Qupperneq 10
„ Til greina kemur að setja í reglur að einungis megi gera tilraunir á fóstri því til hagsbóta, til að athuga hvort það sé sjúkt eða til að lœkna í því sjúkdóm. Síðan verður að fá samþykki eigendanna til að fá að eyðileggja fóstrið. Víkjum talinu aftur að glasafrjóvgunarað- gerðum sem fyrirhugaðar eru á næsta ári á Landspítalanum. Erlendis fara fram rann- sóknir og tilraunir með egg og fósturvísa í tengslum við þessar aðgerðir. Býstu við að svo verði einnig hér á Landspítalanum? Það má búast við að sú spurning komi upp. Þeir sem stunda þessa meðferð verða að fylgjast með þessum rannsóknum og því sem er að gerast nýtt á þessu sviði. Þá er stutt í það að menn vilji sjálfir gera sínar rann- sóknir. Þá erum við komin í nokkurn vanda. Aðgerðin sjálf er ekki svo vandasöm frá sið- ferði eða lögfræðilegu sjónarmiði. Þar eru notaðar kynfrumur frá hjónum, egg og sæð- isfrumur hjóna, og því ekki um slíkan vanda að ræða. Þegar kemur að tilraunum með frjóvgað egg, sem við getum kallað fóstur- vísi, þá kemur að því siðfræðilega og spurn- ing um hvort það geti staðist. Hvaða tryggingu hefur fólk fyrir því að egg eða fósturvísar sem það á verði ekki notuð til tilrauna eða jafnvel af öðrum? Fósturvísar sem ekki eru notaðir við að- gerðina eru frystir og það má nota þá síðar, t.d. í næsta mánuði, hafi aðgerðin ekki tek- ist. Þá gengst konan undir mun einfaldari aðgerð, hún þarf þá aðeins að fá ísetta fóst- urvísa. Ef þessir fósturvísar eru ekki notaðir á þennan hátt er mikill vandi á höndum. A hvern hátt á að nota þá og ekki síður ef það á ekki að nota þá. Hvað er gert við þessa afgangs fósturvísa í dag? Þar sem til eru lög um þetta, eru í þeim ákvæði um þessi atriði. Fósturvísarnir eru þá taldir eign konunnar eða hjónanna og má ekki ráðstafa þeim á neinn hátt án samþykk- is hennar eða þeirra. Ef það eru leyfðar tilraunir á fóstrum þá er það innan ákveð- inna tímamarka. Tilraunir eru þá gerðar á fóstri sem er viku eða tveggja vikna gamalt, þroskinn má ekki vera kominn lengra. Til greina kemur að setja í reglur að einungis megi gera tilraunir á fóstri því til hagsbóta, til að athuga hvort það er sjúkt, eða til að reyna að lækna í því sjúkdóm. Síðan verður að fá samþykki eigendanna til að fá að eyði- leggja fóstrið. Er hægt að tryggja það á einhvern hátt að fósturvísar séu ekki misnotaðir? Það er hægt að gera ráðstafanir til að reyna að tryggja það, en það er sjálfsagt hægt að misnota þetta eins og allt annað, ef menn hafa þann ásetning. Þegar íslenskar konur fara í þessa aðgerð til Bretlands eru þær látnar skrifa undir að þær beri sjálfar ábyrgð á aðgerðinni. Gerir þú ráð fyrir að þetta verði einnig gert hér? Við erum ekki vön því að gera slíka samn- inga, hvorki læknar né sjúklingar, en þetta er tíðkað mjög erlendis, ekki aðeins við þessar aðgerðir. Það hefur ekki komið til tals að það verði gerðir slíkir samningar hér. Er glasafrjóvgun dýr aðgerð miðað við aðrar læknisaðgerðir? Sé hún gerð erlendis kostar hún fyrir utan ferðir og uppihald um 170 þúsund krónur. Við gerum ráð fyrir að hún verði heldur ódýrari hérna. Sé miðað við aðrar læknisaðgerðir er hún e.t.v. ekki svo dýr, hún er talin ódýrari en að skipta um mjaðmarlið og mun ódýrari en hjartaaðgerð. Hún er þá ekki svo dýr í raun? Það fer eftir því hvernig á það er litið. Við getum spurt hvers virði hver einstaklingur sé þjóðfélaginu. Hvernig skiptist kostnaðurinn? Tryggingastofnun greiðir kostnaðinn af aðgerðinni að fullu nú, við hina erlendu stofnun. Fólkið greiðir sjálft annan kostnað sem af þessu hlýst, svo sem ferðir og uppihald. Þegar aðgerðin verður að öllu leyti gerð hér á landi er það spurning hver eigi að greiða þennan kostnað. Það er ýmislegt sem styður það að fólkið sjálft taki þátt í kostnaðinum. Þá kæmi til greina að það greiddi fjórðunginn. Það sem mælir með þessu er í fyrsta lagi, að þetta fólk er fullfrískt og með fulla starfsorku og hefur þess vegna alla möguleika á að afla sér tekna, sem sjúkur maður hefur ekki. í öðru lagi er ekki um einstakling að ræða, heldur eru þau tvö um þetta og vinna oftast bæði. í þriðja lagi vill fólk mikið á sig leggja til að eignast barn og því eru langflestir reiðubúnir til að taka þátt í þessum kostnaði, og í fjórða lagi gæti það orkað tvímælis siðferðilega að taka allt þetta fé úr sjúkrasjóði, úr sameiginlegum sjóði sem er ætlaður öllum sjúkum, því hann kemur varla á næstunni til með að duga fyrir öllu því sem hægt og æskilegt er að gera fyrir sjúkt fólk. En þar sem þetta er mannúðarmál eins og ég sagði áðan, er sjálfsagt að sjúkratryggingasjóður gréiði þetta að hluta. Þú sagðir áðan að hver kona fengi að fara þrisvar í glasafrjóvgunaraðgerð nú. Verður konum gert kleift aö koma oftar í aögerð þegar þær hefjast hér á Landspítalanum? Það má vel vera, við vitum ekki hversu mikil aðsókn verður svo það er erfitt að segja fyrir um það nú. Við vitum að það verður að vera viss lágmarks aðsókn til þess að svona eining geti starfað og starfsfólkið haldi nauðsynlegri þjálfun. Þá þarf að hafa vissan fjölda viðfangsefna í hverri viku. Það væri æskilegt að við gætum boðið hverri konu upp á fleiri tilra.unir. Gerið þið ráð fyrir að geta tekið á móti fólki í tæknifrjóvgun frá öðrum löndum? Já, það er vel hugsanlegt að við gætum annað því, t.d. nágrannalöndum. Það er geysileg eftirspurn eftir þessari meðferð mjög víða. 10 Á.R.J.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.