19. júní


19. júní - 19.06.1989, Side 16

19. júní - 19.06.1989, Side 16
jafn heppnir í dag. Eitt par (eflaust fleiri) var að fá þann úrskurð að eggin þeirra hefðu ekki frjóvgast. Þetta eru hjón sem eru komin langt að og eru hér í fjórða sinn. En þetta er þeirra vandamál og hefur gerst í öll skiptin. Næst á að prófa nýja aðferð til þess að frjóvga eggin hjá þeim, en þeir eru mjög framarlega hérna í rannsóknum á öllum þeim þáttum sem eitthvað getur verið að. Ég vona innilega að það gangi vel hjá þeim næst. Ekki veitir þeim af góðum stuðningi og mér fannst svo gott að heyra að þau ætla ekki að gefast upp. Það er nefnilega málið. Ekki gefast upp — sjá alltaf fram á veginn — nýir möguleikar eru alltaf í augsýn, slíkar eru framfarirnar. Hér er líka kona sem er hér í 7. sinn — hún ætlar ekki að gefast upp. Mér finnst það gott hjá henni, þó svo að ég myndi ekki fara í þetta svo oft (segi þetta kannski núna — því dagurinn í dag hefur verið átök — aldrei að vita nema ég fari aftur og aftur ef þetta tekst ekki í þetta sinn). En eins og þú hefur lesið þá er lífið hér ekkert annað en egg og aftur egg. Að kvöldi 10. dags. Síðustu dagar hafa verið ljúfir, en mikil spenna. Ég á að fá stóru sprautuna í kvöld kl. 11. Stóra sprautan er sú sem er gefin til þess að ákvarða egglosið, og gerist það nákvæmlega 36 stundum seinna, og þá verða eggin tekin. Ég er með 6 góð egg segja sérfræðingarnir og eru þau orðin 18 mm. En það er stærð eggjanna sem ákvarðar hvenær stóra sprautan er gefin. Þetta er allt skoðað í sónar. Hér er um tvenns konar sónar að ræða. Einn venjulegan eins og þann sem konur þekkja frá Landspítalanum, þar sem tæki er sett á magann, s.s. utanfrá, en hinn sónarinn er þannig að eggin eru skoðuð neðanfrá, s.s. tæki sett neðst í leggöngin og þannig geta þeir séð allt sem inní okkur er og mun nákvæmar en með hinum, að því að mér er tjáð af sérfróðum. Samskonar tæki er notað þegar eggin eru tekin, en þetta tæki heitir á ensku „ultra scan-vaginal“. Eitt þarf ég að segja þér sem er mjög merkilegt. Hér sést ekki hefðbundinn „kvenskoðunarstóll“ — þvílíkur léttir. Ég held að því sé þannig farið með allar (flestar) konur að þennan stól og þá stellingu sem honum fylgir eiga þær erfitt með að þola. En hér er ekki um slíkt að ræða. Stóllinn sem notaður er t.d. í fína sónarnum er ekkert líkur þessum hefðbundnu stólum, og slaka því konur vel á þegar þær leggjast á óhefðbundna bekkinn og allt óöryggi fer út í veður og vind. Ætli ég skrifi þér ekki næst línu, þegar þetta er yfirstaðið. 15. dagur Eggin voru sett upp í gær. Þvílík upplifun. En ég byrja þar sem frá var horfið síðast, svo þú fáir þetta allt í réttri röð. Eggin voru tekin að morgni 12. dags. Farið var með mig í „leikhúsið" (en skurðstofa á ensku er „Theater"). Þar voru þessir líka öðlingar, en aðgerðin var gerð með „vaginal-ultra scan“, en 95% af aðgerðunum eru gerðar á þennan hátt. Þá er farið í gegnum leggöngin og sett gat á eggjastokkana (sem þeir fylgjast með í sjónvarpstæki) og eggin soguð upp. Þannig eru bestu eggin tekin, en þau sem minni eru eru látin eiga sig. Síðan eru þau sett í vökva og geymd þar til aðgerð er lokið. Sumar konur lenda í því að eggin eru tekin í gegnum kviðspeglun en mér skilst að 16

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.