19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1989, Qupperneq 17

19. júní - 19.06.1989, Qupperneq 17
það sé innan við 5% og er það gert í þeim tilvikum þar sem eggjastokkarnir liggja verr við (eða eitthvað svoleiðis — ég er nú ekki læknir svo ekki get ég lagt mat á þetta). En þessi aðgerð tekur 30—60 mínútur allt eftir því hvað eggin eru mörg. Hér var ein með 35 egg, en einungis tekin 5 sem þeir töldu góð. Hjá mér voru tekin 5 egg. Þannig að ég er lukkunnar pamfíll. Klukkutíma áður en eggin eru tekin þurfa karlmennirnir að skila sæðisprófi. Það er kallað að fara í turninn, og ekki þykir það feimnismál hér, þó svo að sumum líði nú kannski ekki beint vel. En ekki er þetta hægt nema þeir skili sínum helming — við eggjum — þeir sæði (þetta er eins og í litlu gulu hænunni). Síðan hittist egg og sæði og sér „embryologinn“ (þroskafræðingur?) um að þessi samruni gangi fyrir sig. Ekki er þetta nú búið enn. Og dagurinn eftir eggjatöku er mikill spennudagur. Þá þurfa karlmennirnir að vera á vaktinni eins og það er kallað frá því klukkan 9.30 til 13.30. til að hægt sé að ná í þá ef þörf er á meira sæði. Því eins og þig grunar eflaust, þá getur ýmislegt komið upp á þessu stigi málsins. Þá er setið í dagstofunni og í hvert sinn sem síminn hringir stífna allir sem eru í þessari biðstöðu, og var ég engin undantekning þar á. En sem betur fer þurfti ekki neitt slíkt þannig að þá veit maður að frjóvgun er hafin og allt ætlar að ganga vel sem eftir er. En í gær voru svo eggin sett upp. Það er alveg stórkostlegt. Herbergið hálfmyrkvað (því fósturvísarnir þola ekki birtuna), og til staðar voru læknir, hjúkrunarfræðingur og síðan birtist „embryologinn“ með litlu fósturvísana, þegar búið var að gera mig klára. Þegar fósturvísarnir eru settir upp, þá er rúmið sett í hallandi stöðu (höfuðið niður), og er fótagaflinn notaður sem trappa, og var ég látin sitja fremst á brúninni og síðan hallaði ég mér aftur. Þetta var alls ekki óþægileg staða. Það voru settir upp 3 fósturvísar („nice embryos“). Síðan var ég dregin til í rúminu (fætur upp á ská og höfuð niðri), og keyrð síðan inn á herbergi og erum við konurnar látnar vera í þessari stöðu í 2 tíma eftir uppsetningu. Þetta var hið mesta ævintýri. T... var með mér inni og var þetta ekki síður ævintýralegt fyrir hann. Sat hann og hélt í hönd mína þar til tveggja tíma biðin var yfirstaðin. Þegar búið er að setja upp eggin þá er byrjað að telja dagana á annan hátt en áður, og heitir þessi dagur þá hjá mér 2. dagur (s.s. 2. dagur fósturvísis). Á 15. degi frá uppsetningu fæst svar um hvort einhver fósturvísirinn hefur fests. Nú geng ég um og er alltaf verið að minna mig á það að ég sé þegar orðin ófrísk þar til annað er sannað. Mér líður alveg stórvel utan þess að nú þegar einni lyfjagjöf er hætt þá byrjar önnur og á ég að vera í sprautum í 3 mánuði ef fósturvísarnir festast. En það er nú ýmislegt á sig leggjandi. Ég ætla nú að fara að hætta — þetta bréf fer að verða gamalt og það gæti þess vegna komið heim á eftir mér. Hlakka til að sjá þig. Bestu kveðjur til allra. Stína. 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.