19. júní


19. júní - 19.06.1989, Síða 22

19. júní - 19.06.1989, Síða 22
sín. Henni brá þegar hún heyrði David stinga lyklinum í skrána. Hún tróð blaðinu í vasann og stóð upp til að taka á móti honum. Hann var brosandi þegar hann kom inn, þessi ljóshærði gullni piltur úr Heil- brigðisráðuneytinu, stofnuninni sem hafði fyrirskipað að stúlkufóstruin skyldi eytt. í fyrstu hafði hún verið sannfærð um að hann ætti þar engan hlut að máli. Því hélt hann sjálfur fram en núna var hún í fyrsta skipti í vafa. Hann faðmaði hana blíðlega og kyssti hana á kinnina. Síðan leit hann eftirvænting- arfullur í augu hennar. „Jæja?“ sagði hann óþreyjufullur. Hún reiddist honum skyndi- lega. Sá hann það ekki? Gat hann ekki séð eftir fimm ára hjónaband að hún væri bæði reið og hrædd? Hún svaraði engu. Að augnabliki liðnu tók hann hana aftur í fang- ið. Þau héldu lengi hvort utan um annað, Kira gaf tárunum lausan tauminn og David grét ineð henni. Hún tók fastar utan um hann þegar hann byrjað að gráta og fann hvernig hún elskaði þá hlið hans sem gat fundið til og blíðu tilfinningarnar sem auð- velduðu honum kænsku ef svo bar undir. Eftir stutta stund jafnaði hann sig. „Pantaðirðu tíma?“ „Nei,“ svaraði hún og það fór í taugarnar á henni hvað hann gat verið ópersónulegur. „Ég treysti mér ekki til þess. Ég skal gera það á morgun,“ laug hún. Hann brosti við en sagði ekkert. Hann losaði um bindið og fór inn í svefnherbergið til að skipta um föt. Þau sátu þögul við matarborðið. Kira var þungt hugsi um það sem sagt var í bæklingn- um, og David hugsanlega um vinnuna eða jafnvel um helgaráformin, hún vissi það ekki. Eftir matinn ráfaði hún aftur inn í dag- stofuna. Hún hafði eldað, hann varð að ganga frá. Á meðan hún virti fyrir sér inarg- breytileika borgarinnar fyrir neðan hana, barst til hennar skarkalinn úr eldhúsinu þar sem hann var að þvo upp og ganga frá pott- um og diskum. Þau háttuðu snemma. David vildi að þau elskuðust og lét eins og þá yrði allt gott á ný, en Kira neitaði, blíðlega en ákveðið. „Ég vil eiga eina nótt ein með barninu mínu ef þeir ætla að taka hana á morgun.“ David kinkaði bara kolli, vonsvikinn og dálítið ráðvilltur yfir því að geta ekkert gert. Hann sat og hallaði sér upp að koddanum sínum, gyllt hárið úfið, bringan ber og vöðvarnir voru spenntir þegar hann fletti blaðsíðum í bók. Hann gaut af og til augunum á hana og snerti fótlegg hennar þar sem hún lá og starði til lofts. Himinblá augu hans mættu grænum augum hennar og hann brosti. „Þetta verður allt í lagi, elskan,“ sagði hann. „Það varð það ekki hjá Kam.“ „Þú færð aðeins það besta. Ég kem því til leiðar. Ég vil að þú fáir aðeins það besta. Ég get meira að segja tekið mér frí í vinnunni og verið hjá þér á meðan. Viltu að ég geri það?“ Kira brosti. „Gefðu mér umhugsunarfrest til morguns.“ David kinkaði kolli en hélt ekki áfram að lesa. Þess í stað lokaði hann bókinni, lagðist við hlið hennar og reyndi að hughreysta óttaslegna og bitra eiginkonu sína með blíðlegri snertingu. Tunglsljósið flæddi óhindrað inn um gluggana. Kira leit á klukkuna, hún var eitt eftir miðnætti. David svaf þungum svefni við hliðina á henni, en hún var búin að liggja lengi vakandi. Hún gat ekki hugsað um ann- að en konurnar í Barren sem héldu börnun- um sínum. Tímunum saman hafði hún velt fyrir sér þeim möguleika að flýja borgina, en nú álasaði hún sjálfri sér fyrir kjánaskapinn. Hún horfði á klukkuna og það skelfdi hana hve tíminn leið hratt því hún vissi að hún yrði að taka ákvörðun fljótlega. Nætur- verðirnir við borgarhliðin myndu ekki meina henni útgöngu núna, en á morgun yrði nafnið hennar komið á skrá yfir konur sem ættu að fara í fóstureyðingu. Engri þeirra kvenna yrði leyft að yfirgefa borgina. Kira hafði fram til þessa ekki skilið hvers vegna það var svo en núna fór hana að gruna að þeir óttuðust að of margar konur á barn- eignaaldri myndu reyna að flýja til Barren, ef slíkur staður var þá til. Hún reis upp úr hjónarúminu og fór inn í næsta herbergi til að klæða sig. Eins og ósjálfrátt klæddist hún ferðafötum en á sama tíma taldi hún sjálfri sér trú um að hún væri í raun ekki búin að gera upp hug sinn. Fimm- tán mínútum síðar stóð hún fyrir framan hálf- fullan bakpoka sem hún átti frá skóla- árunum og reyndi að ákveða hvað hún ætti að setja í hann.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.