19. júní


19. júní - 19.06.1989, Síða 76

19. júní - 19.06.1989, Síða 76
STARFSEMI KRFÍ Á LIÐNU STARFSÁRI hópar, vinnuhópar, fyrirlestrar, út- gáfustarfsemi auk almennra funda. Ennfremur góð tengsl við önnur fé- lög og stofnanir sem vinna að jafn- réttismálum. Persónulega hef ég áhuga á að saga félagsins verði gefin út en Sig- ríður Th. Erlendsdóttir sagnfræðing- ur vinnur að ritun hennar. Ennfrem- ur þykir mér eðlilegt að endurskoða hlutverk Menningar- og minningar- sjóðs íslenskra kvenna í samræmi við breytta tíma. Hefur verið gengið til góðs með starfsemi KRFÍ? Þessari spurningu svara ég hik- laust játandi, á því leikur enginn vafi. KRFÍ barðist fyrir því að konur fengju kosningarétt og kjörgengi og sýndu vilja sinn í verki með því að bjóða fram sérstaka kvennalista bæði til sveitarstjórna- og Alþingis, að- gerð sem hvergi hefur tekist nema hér á landi. Launamál kvenna, skattamál og tryggingamál eru þeir málaflokkar sem félagið hefur beitt sér fyrir af hvað mestum þunga í sögu sinni. Vindar hafa blásið mishagstætt fyrir kvennabaráttu í gegnum aldirn- ar. Undanfarin ár hefur verið lag: konur hafa sótt fram á flestum svið- um og kvennafronturinn er reiðari en nokkru sinni fyrr, sem betur fer. Lögskipað jafnréttisráð mótar núna opinbera stefnu í jafnréttismálum til fjögurra áraísenn. En á meðan raun- verulegu jafnrétti er ekki náð hefur félag eins og KRFÍ miklu hlutverki að gegna. stefansblSm VIÐ BARÖNSSTÍG SÍMI 10771 Helgarblað Það sem einkum hefur einkennt starfsemi Kvenréttindafélags íslands á liðnu starfsári er þrennt. í fyrsta lagi þátttaka félagsins í norrœna kvennaþinginu síðastliðið sumar, í öðru lagi landsfundur félagsins sem haldinn var 14. og 15. október sl., og í þriðja lagi tók félagið við formennsku í hússtjórn Kvennaheimilisins Hallveigarstaða. Mikill tími formanns og framkvœmdastjórnar hefur farið íþessa þrjá þœtti, enda mikilvœgt að vel tækist til. Stjórn KRFÍ kom saman til fundar að jafnaði einu sinni í mánuði síðast- liðið starfsár og hélt samtals 11 stóra stjórnarfundi. Auk þess hittist fram- kvæmdastjórn að jafnaði vikulega. I framkvæmdastjórn eiga sæti for- maöur, varaformaður, ritari, gjald- keri og meðstjórnandi kosinn á aöal- fundi. Framkvæmdastjóri félagsins situr alla fundi. Framkvæmdastjóraskipti urðu á árinu, Björg Jakobsdóttir lét af störf- um síðastliðið vor, og við starfi henn- ar tók Herdís Hall. Starf Herdísar er að hluta til framkvæmdastjórastarf Kvennaheimilisins Hallveigarstaöa, og er hún í 70% starfi. Skrifstofa fé- lagsins er opin daglega frá kl. 10—12. Á árinu hafa verið keypt ný skrif- stofutæki, tölva, skrifborðsstóll og ljósritunarvél, og einnig hefur lýsing á skrifstofu verið bætt. Fjöldi félagsmanna hefur lítillega aukist á starfsárinu, en rætt hefur verið um að gera þurfi átak í félaga- öflun. Eins og kunnugt er, eru bæði einstaklingar og félög félagar í KRFI, og eru á sjötta hundrað einstaklingar félagsmenn, og 41 félag á aðild að KRFÍ. Félagsfundir og fleira Félagið hefur leitast við að halda mánaðarlega félagsfundi, sem opnir eru öllum almenningi um hin ýmsu mál, sem með einum eða öðrum hætti tengjast tilgangi félagsins. Sami háttur hefur verið hafður á og á sl. starfsári, og stjórnarkonur hafa skipt með sér verkum við undirbúning fundanna. Hefur þetta gefið góða raun, verkefnin deilst niður á fleiri herðar og létt störfum af fram- kvæmdastjórn. Fyrsti félagsfundur starfsársins var 5. maí sl. að Hallveigarstöðum og bar yfirskriftina „Konur og kjara- mál“. Framsöðu höfðu Oddrún Kristjánsdóttir, Bjarnfríður Leós- dóttir og Ingibjörg R. Guðmunds- dóttir. Fundarstjóri var Sólveig Ólafsdóttir. Fundurinn hefði mátt vera betur sóttur, en umræður urðu líflegar um þetta mál, sem brennur svo mjög á konum. Þann 27. september á afmæli Brí- etar Bjarnhéðinsdóttur, var haldinn fundur um málefni Menningar- og minningarsjóðs kvenna. Framsögu höfðu Jónína Margrét Guðnadóttir, Hjördís Þorsteinsdóttir og Arndís Steinþórsdóttir. I október var landsfundur félags- ins haldinn, og er fjallað um hann annars staðar. í október og nóvember tóku KRFÍ konur þátt í fundaröðinni Afram Forum, þar sem tekin voru fyrir þau efni, sem konur höfðu verið með í Osló í sumar. Félagið tók þátt í opn- unarhátíðinni 23. október, og stóð fyrir fundi ásamt öðrum, þar sem 76
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.