19. júní


19. júní - 19.06.1989, Page 77

19. júní - 19.06.1989, Page 77
pVBPfl C Cgf / ÍÁ;;;' Hu Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir fjallaði um nýútkomna bók -Kvinder og Mænd i Norden-, þar sem birtar eru tölulegar upplýsingar um stöðu kvenna og karla á Norðurlöndum. Jólafundur félagsins var haldinn þann 13. desember að Hallveigar- stöðum. Var þar boðið upp á jóla- veitingar, og á dagskrá fundarins var vegleg bókakynning á nýútkomnum jólabókum, auk hugleiðingar Auðar Eir Vilhjálmsdóttur um „félagið mitt“. Einnig komu fram litlar stúlk- ur sem léku á hljóðfæri. Jólafundur- inn tókst í alla staði hið besta. Fund- arstjóri var Gerður Steinþórsdóttir. Al'mælis- og kynningarfundur fé- lagsins var haldinn 25. janúar sl. að Hallveigarstöðum. Rætt hafði verið um að nota afmælið til að kynna starfsemi félagsins vel og hvetja eink- um ungar konur til þátttöku. For- maður hafði framsögu um starfsemi og tilgang félagsins í dag, og Jónína Margrét Guðnadóttir fjallaði um ákveðna þætti úr sögu félagsins. Mikil ófærð var þennan dag, og var fundarsókn dræm. Olli það veruleg- um vonbrigðum. Þrátt fyrir það skiptu konur sér í hópa og ræddu nútíð, fortíð og framtíð félagsins. Voru umræður frjóar og góðar hug- myndir komu fram um starf félags- ins. Fundarstjóri var Ragnheiður Harðardóttir. Þann 15. febrúar sl. var haldinn fundur að Hallveigarstöðum um svívirt börn. Þar komu fram konur frá vinnuhóp Samhjálpar um sifja- spell, og lýstu reynslu sinni af sifja- spellum. Framsögu á fundinum höfðu Bogi Nilsson, rannsóknarlögr- eglustjóri ríkisins, Ingi Björn Al- bertsson, þingmaður, Sólveig Pét- ursdóttir, formaður barnaverndar- nefndar Reykjavíkur, og Edith Randý Ásgeirsdóttir. Fundarstjóri var Kristín Karlsdóttir. Fundurinn var mjög vel sóttur og þau mál sem rædd voru þess eðlis að allir fundar- menn voru sammála um að tala þyrfti þetta vandamál í hel. Þann 21. febrúar sl. stóð KRFÍ að fundi á Hallveigarstöðum ásamt Kvenfélagasambandi íslands og Bandalagi Kvenna í Reykjavík um fósturskaða af völdum áfengisneyslu móður á meðgöngu. Hér var á ferð prófessor Ann Streissgut frá Seattle í Washington ríki í Bandaríkjunum, og skýrði frá rannsóknum undir hennar stjórn á þessu viðfangsefni. Taldi hún ekki hægt að fullyrða að jafnvel verulega takmörkuð áfengis- neysla hefði ekki skaðleg áhrif á fóst- ur á meðgöngu, en sýnt hefur verið fram á tengsl óhóflegrar áfengis- neyslu og ákveðinnar tegundar van- gefni. Með samanburðarrannsókn- um væri ýmislegt sem benti til þess að börn mæðra, sem hefðu neytt áfengis á meðgöngu væru seinni til en önnur börn. Var fundurinn ágætlega heppnaður í alla staði, þótt ánægju- legt hefði verið aðsjáfleiri gesti. Jón- ína Margrét Guðnadóttir var fundar- stjóri. Þann 12. mars sl. stóðu nokkur kvennasamtök að fundi í Hlaðvarp- anum um sifjaspell. KRFÍ átti aðild að fundinum og var fulltrúi okkar í undirbúningshópi Kristín Karlsdótt- ir. Rétt er að skýra frá því að vegna forsetakosninga sl. sumar afhenti fé- lagið fjárhæð í kosningasjóð Vigdísar Finnbogadóttur. Nordisk Forum Svo sem getið var um í upphafi setti þátttaka KRFÍ á norræna kvennaþinginu í Osló í sumar mark sitt á starfsemi félagsins allt þetta starfsár. Félagið bauð öllum stjórnarkon- um til Osló, þ.e. fargjaldið var greitt Konurnar sem báru hita og þunga afstarfi KRFÍ. fyrir þær, sem vildu fara. Félagið var með sýningarbás á þinginu, þar sem 19. júní var sérstaklega kynntur. Ennfremur tók félagið þátt í dagskrá NKS, undir yfirskriftinni Konur og völd, en viðfangsefni KRFÍ var sá þáttur, sem að fjölmiðlum snýr. Fluttu þær Ragnheiður Harðardótt- ir, þjóðfélagsfræðingur og Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðlafræðingur er- indi um efnið á tveimur fundum. Félagið átti fulltrúa í undirbún- ingsnefnd kvennaþingsins, og var Arndís Steinþórsdóttir önnur tveggja kvenna af Islands hálfu í nor- rænu undirbúningsnefndinni. Jónína Margrét Guðnadóttir átti auk Arn- dísar einnig sæti í íslensku undirbún- ingsnefndinni. Sérstök nefnd innan félagsins sem Ragnheiður Harðar- dóttir stýrði hafði veg og vanda að undirbúningi KRFÍ í kvennaþinginu og hafði um langt skeið undirbúið þátttöku okkar á þinginu. Meðal annars lét félagið sauma sérstakar töskur, með merki félagsins, sem það seldi í Osló. Kvennaþingið tókst í alla staði hið besta, eins og kunnugt er og var hlut- ur KRFÍ félaginu til sóma í hvívetna. 17. landsfundur KRFÍ 14. —15. október 1988 17. landsfundur félagsins var hald- inn í Sóknarsalnum dagana 14,—15. október sl. Undirbúningur hafði staðið frá því snemma árs, og lands- fundarfulltrúar m.a. kosnir á síðasta aðalfundi. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ávarpaði fund- inn í upphafi. Auk hefðbundinna viðfangsefna landsfundar var á fund- inum sérstaklega fjallað um konur og fjölmiðla, og höfðu þær Ragnheiður Harðardóttir og Sigrún Stefánsdóttir framsögu um þetta mál. Einnig var fjallað um konur og stjórnmál, en þar höfðu framsögu Kristín Einarsdóttir, 77

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.